Kafli 11 af 18
Athugasemdir frá lesendum

Athugasemdir geta verið skemmtileg viðbót við fréttir og blogg, en þær þarf að ritstýra. Hér lærirðu að samþykkja, svara og henda ruslpósti, og að stilla hvort og hvernig athugasemdir eru leyfðar.
Margir WordPress-vefir leyfa lesendum að skrifa athugasemdir við færslur. Það getur skapað líflegt samtal, en því fylgir líka ábyrgð: einhver þarf að lesa athugasemdirnar, svara spurningum og henda ruslpósti (e. spam), sem berst nær örugglega um leið og vefurinn fer í loftið.
Að fara yfir athugasemdir
Allar athugasemdir finnurðu undir „Athugasemdir“ í valmyndinni vinstra megin. Talan við hliðina á heitinu segir hve margar bíða samþykkis. Efst geturðu síað listann: Allar, Mine, Í bið, Samþykktar, Amafærslur (ruslpóstur) og Rusl.

Þegar þú færir músina yfir athugasemd birtast valmöguleikar undir textanum. Þar geturðu samþykkt hana eða hætt við samþykki, svarað henni beint, breytt henni, merkt hana sem ruslpóst eða sett hana í ruslið. Í dálkinum „In response to“ sérðu við hvaða færslu athugasemdin var skrifuð.
- Smelltu á „Í bið“ til að sjá aðeins athugasemdir sem bíða.
- Lestu hverja og eina. Ef hún er í lagi, veldu samþykkja. Ef hún er auglýsing eða bull, merktu hana sem ruslpóst.
- Svaraðu spurningum beint úr listanum; svarið birtist undir athugasemdinni á vefnum.
- Til að vinna með margar í einu skaltu haka við þær, velja aðgerð í „Bulk actions“ og smella á „Framkvæma“.
ÁbendingAð merkja athugasemd sem ruslpóst er betra en að eyða henni, því þá lærir ruslpóstvörn eins og Akismet að þekkja svipaðar athugasemdir.
Stillingar fyrir umræðu
Hvort athugasemdir eru leyfðar og hvernig þær eru meðhöndlaðar ræðst af stillingunum undir Stillingar → Umræða. Þar eru meðal annars þessir valkostir:

- „Allow people to submit comments on new posts“: hvort athugasemdir eru yfirleitt leyfðar. Ef þú vilt engar athugasemdir, taktu hakið af.
- „Höfundur athugasemdar verður að tilgreina nafn og netfang“: dregur aðeins úr nafnlausu rugli.
- „Automatically close comments on old posts“: lokar fyrir athugasemdir eftir tiltekinn fjölda daga. Ruslpóstur leitar oft í gamlar færslur.
- „Enable threaded (nested) comments“: leyfir svör við svörum, svo samtalið verður auðveldara að fylgja.
Neðar á sömu síðu geturðu krafist þess að athugasemd sé samþykkt handvirkt áður en hún birtist, og sett inn orð eða slóðir sem senda athugasemd sjálfkrafa í bið eða í ruslið. Fyrir lítið fyrirtæki er handvirkt samþykki yfirleitt öruggasti kosturinn. Þar er líka hægt að velja hvort myndir af höfundum birtist, en þær sækir WordPress af Gravatar.com. Mundu að vista neðst á síðunni.
Í næsta kafla förum við yfir hlekki: hvernig þú tengir á aðra vefi og á þitt eigið efni.