Af hverju Veföld?

Við komum þér
í loftið

Vefhýsing með faglegri umsjón. Keyrir á Google Cloud með Cloudflare-vörn og nýjustu vefstöðlum, og fólk sem sér um að vefurinn þinn sé í lagi, dag eftir dag.

Fyrirtæki sem treysta Veföld

  • Nox Medical
  • Regla
  • Verkís
  • Ölgerðin
  • Sjóvá
  • Olís
  • Arnarlax

Flutningur

Frír vefflutningur

Ef þú ert nú þegar með vef annars staðar sjáum við um að flytja hann til okkar þér að kostnaðarlausu. Þú útvegar okkur aðgang að vefsvæðinu, við sjáum um afrit, flutning, prófanir og DNS, án niðritíma.

Hraði

Eldsnöggir vefir

Vefirnir keyra á afkastamiklum Google Cloud vélum og síðurnar eru geymdar í skyndiminni í Cloudflare-netinu, í yfir 300 staðsetningum um allan heim, svo þær berast gestum frá næsta punkti. Það er engin þörf á hraðaviðbótum: við sjáum alfarið um að hafa vefinn eins snöggan og mögulegt er.

  • Efnið afgreitt nálægt gestum
  • Nýjustu tengistaðlar
  • Léttari skrár, hraðara niðurhal
  • Öflugar Google Cloud vélar

Öryggi

Frítt SSL og Cloudflare-vörn

Öllum vefsvæðum Vefaldar fylgir SSL-skírteini frá Cloudflare sem endurnýjast sjálfkrafa, ásamt eldvegg og vörn gegn netárásum frá Cloudflare sem stöðvar óæskilega umferð áður en hún nær vefnum. Það þarf hvorki að vera erfitt né flókið að vera með öruggan vef.

Engin áhætta

30 daga skilafrestur

Ef þér snýst hugur innan 30 daga endurgreiðum við hýsinguna að fullu. Engar spurningar, engin binding.

Settu vefinn þinn
í öruggar hendur

Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.