Þjónusta · Vörn og stöðug vöktun
Öryggi og vöktun
WordPress er vinsælasta vefumsjónarkerfi heims, og þess vegna vinsælasta skotmarkið. Veföld setur upp öryggislag utan um vefinn þinn, vaktar hann stöðugt og bregst við áður en lítil frávik verða að stórum vandamálum.
Fyrirtæki sem treysta Veföld
- Nox Medical
- Regla
- Verkís
- Ölgerðin
- Sjóvá
- Olís
- Arnarlax
Lausn Vefaldar
Varnir og vöktun í einum pakka
Við hertum öryggisstillingar WordPress, höldum öllu uppfærðu, setjum upp SSL og vöktum vefinn. Ef eitthvað óeðlilegt gerist fáum við viðvörun og bregðumst við, oftast áður en nokkur annar tekur eftir því.
Fyrirbyggjandi varnir
Hert uppsetning og uppfærslur loka algengustu innbrotsleiðunum.
Stöðug vöktun
Uppitími og óeðlileg hegðun vöktuð. Frávik kalla á viðbragð.
SSL og dulkóðun
Öll umferð um vefinn er dulkóðuð með gildu skírteini.
Áskorunin
Óvarinn vefur er spurning um tíma
- Vélmenni leita sjálfkrafa að veikleikum í WordPress vefjum allan sólarhringinn
- Innbrot uppgötvast oft ekki fyrr en vefurinn er kominn á svartan lista
- Niðritími kostar traust, viðskipti og leitarvélastöðu
Innifalið
Innifalið í þjónustunni
- Hertar öryggisstillingar á WordPress
- SSL-skírteini og sjálfvirk endurnýjun
- Uppitímavöktun með viðvörunum
- Eftirlit með óeðlilegum breytingum
- Viðbragð við öryggisatvikum
- Öryggisuppfærslur settar inn tafarlaust
Ferlið
Svona virkar ferlið
Skýr skref frá fyrsta samtali þar til vefurinn er kominn í örugga umsjón.
Fá tilboð- 01
Öryggisúttekt
Við förum yfir vefinn og finnum veikleika.
- 02
Herðing
Öryggisstillingar hertar og varnarlag sett upp.
- 03
Vöktun
Vefurinn er vaktaður og öryggisuppfærslur settar inn jafnóðum.
Settu vefinn þinn
í öruggar hendur
Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.