Þjónusta · Aðstoð þegar eitthvað bilar
Tæknileg aðstoð
Stundum kemur eitthvað upp á: villa eftir uppfærslu, síða sem hleðst ekki, form sem sendir ekki. Þá skiptir máli að hafa beinan aðgang að fólki sem þekkir vefinn þinn út og inn.
- Nox Medical
- Regla
- Verkís
- Ölgerðin
- Sjóvá
- Olís
- Arnarlax
Lausn Vefaldar
Ein skilaboð, við tökum boltann
Viðskiptavinir Vefaldar hafa beinan aðgang að tækniteymi sem þekkir vefinn þeirra. Við greinum vandann, lögum hann og útskýrum hvað gerðist, á mannamáli.
Þekkjum vefinn þinn
Við sinnum vefnum reglulega og þurfum ekki að byrja á núlli þegar eitthvað kemur upp.
Einn aðili
Einn aðili sem sér um tæknihliðina, þú þarft ekki að leita á milli.
Svör á mannamáli
Við útskýrum hvað gerðist og hvað var gert, án tæknistagls.
Áskorunin
Hver hjálpar þér þegar eitthvað bilar?
- Óljóst hvort vandamálið liggur í hýsingunni eða vefnum sjálfum
- Sá sem smíðaði vefinn er ekki endilega til staðar þegar á þarf að halda
- Á meðan er vefurinn bilaður og viðskiptin bíða
Innifalið
Innifalið í þjónustunni
- Bilanagreining og viðgerðir
- Aðstoð við stjórnborð vefsins
- Ráðgjöf um viðbætur og lausnir
- Aðstoð við lénamál og DNS
- Minni breytingar og lagfæringar
Ferlið
Svona virkar ferlið
Skýr skref frá fyrsta samtali þar til vefurinn er kominn í örugga umsjón.
Fá tilboð- 01
Samband
Þú lætur okkur vita með tölvupósti eða skilaboðum.
- 02
Greining
Við finnum rót vandans, ekki bara einkennin.
- 03
Lausn
Vandinn lagaður og þú færð skýringu á því sem gerðist.
Settu vefinn þinn
í öruggar hendur
Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.