Þjónusta · Forrit, gagnagrunnar og static vefir

Skýjahýsing

WordPress er okkar helsta svið, en langt í frá það eina. Á sömu skýjainnviðum rekum við líka forrit, gagnagrunna, static vefi og skráageymslu, sama áreiðanleika og hraða og þú þekkir úr WordPress hýsingunni.

Fyrirtæki sem treysta Veföld

  • Nox Medical
  • Regla
  • Verkís
  • Ölgerðin
  • Sjóvá
  • Olís
  • Arnarlax

Lausn Vefaldar

Sami rekstraraðili, breiðari tæknistafla

Við byggjum á sömu skýjainnviðum og WordPress hýsingin okkar keyrir á, Google Cloud með Cloudflare-vörn, útvíkkað fyrir forrit, gagnagrunna, static vefi og skráageymslu. Þú færð eitt viðmót, eitt samband og sama rekstraröryggi, óháð því hvaða tækni verkefnið notar.

Áskorunin

Verkefnið er ekki WordPress, en þarf samt öruggan rekstraraðila

  • DevOps-vinna í kringum vefþjóna, skölun og öryggisafrit tekur tíma frá þróun
  • Gagnagrunnar sem enginn hefur yfirsýn yfir eða heldur uppfærðum
  • Mörg kerfi og margir birgjar fyrir ólíka hluta sama verkefnis

Innifalið

Innifalið í þjónustunni

  • Forritahýsing fyrir Node.js, Python, PHP, Go, Docker og fleiri
  • Gagnagrunnshýsing: PostgreSQL, MySQL, MariaDB, Redis
  • Static vefir með edge-dreifingu á heimsvísu
  • S3-samhæf skráageymsla (object storage)
  • Sjálfvirk skölun og útgáfur án niðritíma
  • Dagleg öryggisafrit gagnagrunna

Ferlið

Svona virkar ferlið

Skýr skref frá fyrsta samtali þar til vefurinn er kominn í örugga umsjón.

Fá tilboð
  1. 01

    Greining

    Við skoðum verkefnið þitt, tæknistaflann og þarfir fyrir skölun.

  2. 02

    Uppsetning

    Umhverfið sett upp í skýinu, hvort sem það er forrit, gagnagrunnur eða static vefur.

  3. 03

    Rekstur

    Við sjáum um vöktun, skölun og uppfærslur til framtíðar, sama nálgun og í WordPress umsjóninni.

Settu vefinn þinn
í öruggar hendur

Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.