Þjónusta · Reglulegar uppfærslur og umsjón
Umsjón og uppfærslur
WordPress vefur sem enginn uppfærir verður hægt og rólega að öryggisáhættu. Veföld sér um reglulegar uppfærslur á öllu sem hægt er að uppfæra, WordPress, viðbótum, þemum og PHP, og prófar að allt virki eftir hverja uppfærslu.
Fyrirtæki sem treysta Veföld
- Nox Medical
- Regla
- Verkís
- Ölgerðin
- Sjóvá
- Olís
- Arnarlax
Lausn Vefaldar
Kerfisbundnar uppfærslur með öryggisneti
Við uppfærum reglulega og skipulega: afrit er tekið fyrir uppfærslu, uppfærslan keyrð og vefurinn prófaður á eftir. Ef eitthvað brotnar grípum við inn í strax. Þú tekur ekki einu sinni eftir því.
Uppfært reglulega
WordPress, viðbætur og þemu uppfærð reglulega. Viðbætur sem þurfa leyfislykil uppfærum við þegar lykillinn er til staðar, annars látum við þig vita.
Prófað eftir uppfærslu
Við staðfestum að vefurinn virki eftir hverja uppfærslu.
Afrit fyrir hverja breytingu
Ef uppfærsla veldur vandræðum er alltaf hægt að snúa til baka.
Áskorunin
Úreltur WordPress er stærsta áhættan
- Gamlar viðbætur eru algengasta innbrotsleiðin í WordPress vefi
- Uppfærslur geta brotið vefinn ef enginn prófar þær
- Enginn man eftir að uppfæra fyrr en eitthvað hættir að virka
- PHP úreldist og vefurinn hættir að fá öryggisuppfærslur
Innifalið
Innifalið í þjónustunni
- Reglulegar WordPress-uppfærslur
- Uppfærslur á viðbótum og þemum sem hægt er að uppfæra
- PHP-uppfærslur og samhæfnispróf
- Afrit tekið fyrir hverja uppfærslu
- Virknipróf eftir uppfærslur
Ferlið
Svona virkar ferlið
Skýr skref frá fyrsta samtali þar til vefurinn er kominn í örugga umsjón.
Fá tilboð- 01
Staða tekin
Við kortleggjum viðbætur, þemu og útgáfur á vefnum þínum.
- 02
Uppfærsluáætlun
Vefurinn fer í reglulega uppfærslurútínu Vefaldar.
- 03
Sífelld umsjón
Uppfært, prófað og fylgst með, mánuð eftir mánuð.
Settu vefinn þinn
í öruggar hendur
Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.