Ein heildstæð
vefrekstrarþjónusta
Þjónusta Vefaldar er ekki safn af aðskildum vörum heldur ein samfelld umsjón: hýsingin leggur grunninn, uppfærslur og öryggi halda vefnum heilbrigðum, afrit og vöktun grípa frávik, og þegar spurningar vakna færðu svör frá fólki sem þekkir vefinn þinn.
WordPress vefhýsing
Öflug og örugg hýsing sem er sérstaklega hugsuð fyrir WordPress, hröð, stöðug og rétt stillt.
Umsjón og uppfærslur
Regluleg umsjón með WordPress core, viðbótum, þemum og tæknilegu umhverfi vefsins.
Öryggi og vöktun
Öryggislag, SSL og stöðug vöktun sem ver vefinn þinn gegn innbrotum og niðritíma.
Afritun
Regluleg sjálfvirk afrit og handvirk afrit fyrir stærri breytingar. Vefurinn þinn er alltaf endurheimtanlegur.
Hraði og bestun
Skyndiminni, CDN, myndbestun og markviss hraðavinna sem gerir vefinn þinn áberandi hraðari.
Vefflutningur
Við flytjum vefinn þinn til Vefaldar, örugglega, án fyrirhafnar og án niðritíma.
Tæknileg aðstoð
Bilanagreining og aðstoð þegar eitthvað kemur upp á, beint samband við fólk sem þekkir vefinn þinn.
Skýjahýsing
Forritahýsing, gagnagrunnar, static vefir og skráageymsla á sömu skýjainnviðum og WordPress hýsingin okkar keyrir á.
Hvernig þetta virkar saman
Ein áskrift, vefurinn í lagi
Grunnurinn
Vefurinn býr í hýsingarumhverfi sem er stillt fyrir verkefnið: rétt keyrsluumhverfi, caching og SSL frá fyrsta degi.
Dagleg umsjón
Uppfærslur, öryggisvöktun og afrit ganga sjálfkrafa fyrir sig, með mannlegri yfirferð og prófunum eftir hverja uppfærslu.
Þegar á reynir
Bili eitthvað er viðbragðið okkar megin: greining, viðgerð og skýring á mannamáli. Þú stendur aldrei uppi með vandamálið.
Settu vefinn þinn
í öruggar hendur
Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.