Þjónusta · Hröð, örugg WordPress hýsing

WordPress vefhýsing

WordPress vefur á skilið hýsingu sem er byggð utan um hann. Hjá Veföld er umhverfið stillt fyrir WordPress frá grunni: réttar PHP útgáfur, caching, SSL og öryggislag, svo vefurinn þinn er hraður og stöðugur alla daga.

Fyrirtæki sem treysta Veföld

  • Nox Medical
  • Regla
  • Verkís
  • Ölgerðin
  • Sjóvá
  • Olís
  • Arnarlax

Lausn Vefaldar

Hýsing með umsjón

Hjá Veföld færðu ekki bara pláss á vefþjóni heldur umhverfi sem er sniðið að WordPress og fólk sem sér um það. Við fylgjumst með, uppfærum undirliggjandi kerfi og tryggjum að vefurinn hafi það sem hann þarf til að standa sig.

Áskorunin

Almenn hýsing er ekki hugsuð fyrir WordPress

  • Vefurinn liggur á yfirfullum vefþjóni sem enginn fylgist með
  • PHP-útgáfan er úrelt og enginn uppfærir hana
  • Ekkert skyndiminni, svo vefurinn er hægari en hann þarf að vera
  • Þegar eitthvað bilar er enginn sem sinnir því

Innifalið

Innifalið í þjónustunni

  • Hýsingarumhverfi sérstillt fyrir WordPress
  • SSL-skírteini og sjálfvirk endurnýjun
  • PHP-uppfærslur og samhæfnispróf
  • Skyndiminni á vefþjóninum
  • Uppitímavöktun
  • Regluleg afrit innifalin

Ferlið

Svona virkar ferlið

Skýr skref frá fyrsta samtali þar til vefurinn er kominn í örugga umsjón.

Fá tilboð
  1. 01

    Greining

    Við skoðum vefinn þinn og núverandi umhverfi.

  2. 02

    Uppsetning

    Vefurinn er settur upp í WordPress-sniðnu umhverfi Vefaldar.

  3. 03

    Rekstur

    Við sjáum um hýsinguna, vöktun og undirliggjandi uppfærslur til framtíðar.

Settu vefinn þinn
í öruggar hendur

Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.