Þjónusta · Sjálfvirk afrit, örugg endurheimt
Afritun
Afrit er öryggisnetið sem enginn hugsar um fyrr en það vantar. Hjá Veföld eru afrit tekin reglulega og sjálfvirkt, geymd á öruggum stað og prófuð, svo þegar eitthvað fer úrskeiðis er endurheimt einföld og hröð.
Fyrirtæki sem treysta Veföld
- Nox Medical
- Regla
- Verkís
- Ölgerðin
- Sjóvá
- Olís
- Arnarlax
Lausn Vefaldar
Sjálfvirk afrit með sannreyndri endurheimt
Afrit eru tekin reglulega af bæði skrám og gagnagrunni og geymd aðskilin frá vefnum sjálfum. Fyrir stærri breytingar tökum við auka handvirk afrit. Og það sem mestu skiptir: við vitum að endurheimtin virkar.
Reglulegt og sjálfvirkt
Afrit tekin á áætlun án þess að nokkur þurfi að muna eftir því.
Geymt aðskilið
Afrit geymd utan vefþjónsins, svo bilun á honum snertir þau ekki.
Hröð endurheimt
Þegar á reynir skiptir hraðinn máli. Endurheimt er æfð og einföld.
Áskorunin
Vefur án afrita er áhætta sem enginn þarf að taka
- Mannleg mistök, röng eyðing eða breyting sem ekki er hægt að afturkalla
- Uppfærsla eða viðbót sem skemmir gögn
- Innbrot þar sem eina örugga leiðin er endurheimt á hreinu afriti
Innifalið
Innifalið í þjónustunni
- Sjálfvirk regluleg afrit af skrám og gagnagrunni
- Handvirk afrit fyrir stærri breytingar
- Afrit geymd aðskilin frá vefþjóni
- Skilgreindur geymslutími afrita
- Endurheimt prófuð og sannreynd
Ferlið
Svona virkar ferlið
Skýr skref frá fyrsta samtali þar til vefurinn er kominn í örugga umsjón.
Fá tilboð- 01
Uppsetning
Afritunaráætlun stillt fyrir vefinn þinn.
- 02
Sjálfvirkni
Afrit tekin reglulega og geymd á öruggum stað.
- 03
Endurheimt
Ef á þarf að halda endurheimtum við vefinn hratt og örugglega.
Settu vefinn þinn
í öruggar hendur
Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.