WordPress frá grunni

Kafli 17 af 18

Notendur og hlutverk

3 mín. lestur

Ef fleiri vinna í vefnum ætti hver og einn að hafa sinn eigin aðgang með hæfilegum réttindum. Hér förum við yfir hlutverkin í WordPress og hvernig þú heldur aðganginum öruggum.

Það er freistandi að deila einu lykilorði með öllum sem þurfa að uppfæra vefinn. Það er samt slæm hugmynd: þú veist ekki hver gerði hvað, og ef einhver hættir þarftu að skipta um lykilorð fyrir alla. Í WordPress fær hver og einn sinn eigin aðgang og hlutverk sem ræður hvað hann má gera.

Hlutverkin

  • Kerfisstjóri (Administrator): hefur fullan aðgang, getur sett inn viðbætur, breytt stillingum og stofnað notendur.
  • Ritstjóri (Editor): getur skrifað, breytt og birt allar færslur og síður, líka annarra, og ritstýrt athugasemdum. Snertir ekki stillingar eða viðbætur.
  • Höfundur (Author): getur skrifað og birt eigin færslur, en ekki breytt efni annarra.
  • Contributor: getur skrifað eigin færslur en ekki birt þær. Kerfisstjóri eða ritstjóri þarf að samþykkja og birta.
  • Áskrifandi (Subscriber): getur aðeins skráð sig inn og breytt eigin prófíl.

Viðbætur geta bætt við hlutverkum. WooCommerce bætir til dæmis við hlutverki fyrir viðskiptavini og verslunarstjóra.

Notendasíðan í WordPress með tveimur notendum: admin, sem er Kerfisstjóri með fjórar færslur, og anna, sem er Ritstjóri. Efst er hnappurinn Add User og síur eftir hlutverkum.
Á sýnivefnum er Anna ritstjóri: hún getur séð um fréttir og síður en getur ekki breytt viðbótum eða stillingum.

Að bæta við notanda

  1. Farðu í Notendur → Add User.
  2. Fylltu út notandanafn og netfang, sem eru nauðsynleg, og helst fornafn og eftirnafn.
  3. Smelltu á „Generate password“ til að fá sterkt lykilorð sem WordPress býr til.
  4. Hakaðu við „Send the new user an email about their account“ svo notandinn fái tölvupóst og geti sett sitt eigið lykilorð.
  5. Veldu hlutverk neðst. Sjálfgefið er Áskrifandi, svo mundu að breyta því.
  6. Smelltu á hnappinn neðst til að stofna notandann.
Síðan Add User í WordPress með reitum fyrir notandanafn, netfang, fornafn, eftirnafn, veffang og tungumál. Undir Lykilorð er búið að búa til lykilorð og grænn mælir segir „Traust“. Hakað er við að senda nýjum notanda tölvupóst.
Græni mælirinn sýnir styrk lykilorðsins. Láttu WordPress búa það til frekar en að finna upp eitthvað sjálf/ur.

Öryggi aðgangsins

  • Minnstu nauðsynlegu réttindi: gefðu hverjum aðeins það hlutverk sem hann þarf. Sá sem skrifar fréttir þarf ekki að vera kerfisstjóri.
  • Sterk lykilorð: löng, einstök og geymd í lykilorðaumsjón. Aldrei sama lykilorð og annars staðar.
  • Tveggja þátta auðkenning: þá þarf kóða úr síma til viðbótar við lykilorð. Hún er ekki innbyggð í WordPress en fæst með viðbót, og er sérstaklega mikilvæg fyrir kerfisstjóra.
  • Taktu til: þegar starfsmaður hættir eða verktaki lýkur verki, eyddu aðganginum eða lækkaðu hlutverkið.

ÁbendingÞegar notanda er eytt spyr WordPress hvað eigi að gera við efnið hans. Veldu að færa það yfir á annan notanda svo færslurnar hverfi ekki.