Kafli 9 af 18
Myndir og gagnamiðlunin

Svona seturðu myndir inn í færslur og síður, skrifar góðan alt-texta og heldur utan um myndasafnið í gagnamiðluninni.
Myndir gera efni líflegra og auðveldara að lesa. Í WordPress eru allar myndir og skrár geymdar á einum stað, í gagnamiðluninni (Media Library), og þaðan geturðu notað þær aftur og aftur í færslum og síðum.
Gagnamiðlunin

Veldu „Gagnamiðlun“ í aðalvalmyndinni. Síðan heitir „Skráarsafn“ og sýnir allar myndir og skrár vefsins. Efst geturðu skipt á milli reita og lista, síað eftir gerð skráa („Allar skrár“) og dagsetningu, og leitað. „Bulk select“ leyfir þér að velja margar skrár í einu, til dæmis til að eyða þeim. Ef þú smellir á mynd opnast gluggi með upplýsingum um hana, þar sem þú getur breytt alt-texta, myndatexta og fleiru, og klippt hana til eða snúið henni.
Til að hlaða upp nýjum myndum smellirðu á „Add Media File“ og dregur skrárnar inn í gluggann eða velur þær úr tölvunni. Í hvert skipti sem þú hleður upp mynd býr WordPress til nokkrar stærðir af henni, svo vefurinn geti sýnt hæfilega stóra útgáfu á hverjum stað.
Mynd sett inn í færslu
- Opnaðu færsluna og smelltu þar sem myndin á að koma.
- Slærðu inn /image og ýttu á Enter, eða veldu „Image“ úr kubbasafninu.
- Hladdu upp nýrri mynd, veldu mynd úr gagnamiðluninni eða dragðu myndaskrá beint inn í kubbinn.
- Skrifaðu alt-texta hægra megin (sjá hér fyrir neðan).
- Bættu við myndatexta ef þú vilt og vistaðu færsluna.

Þegar myndkubburinn er valinn birtist tækjastika fyrir ofan myndina. Þar geturðu meðal annars stillt jöfnun og breidd, gert myndina að hlekk, skorið hana til, sett texta yfir hana og bætt við myndatexta. „Replace“ skiptir myndinni út fyrir aðra. Með hringjunum á jöðrum myndarinnar geturðu dregið hana til og breytt stærðinni.
Alt-texti skiptir máli
Í stillingaspjaldinu hægra megin er reiturinn „Alternative text“. Þar lýsirðu því sem sést á myndinni, í einni stuttri setningu. Alt-textinn er lesinn upp fyrir þá sem nota skjálesara og hjálpar leitarvélum að skilja myndina. Á skjámyndinni stendur einfaldlega „Kanilsnúðar“. Ef mynd er eingöngu til skrauts geturðu hakað við „Mark as decorative“ og þá er hún falin hjálpartækjum.
ÁbendingMinnkaðu stórar myndir áður en þú hleður þeim upp. Mynd beint úr síma getur verið nokkur megabæti og hægt verulega á vefnum. Um 2000 pixla breidd dugar langflestum vefjum.
Ef þú vilt sýna nokkrar myndir saman er Gallery-kubburinn (myndasafn) betri kostur en margir stakir myndkubbar. Í næsta kafla förum við yfir myndbönd.