Kafli 15 af 18
Valmyndir (Navigation)

Valmyndin efst á vefnum er það fyrsta sem gestir nota til að rata. Hér lærirðu að velja hvaða síður birtast, í hvaða röð, og að bæta við undirvalmyndum og tenglum.
Góð valmynd er stutt og skýr. Gestir ættu að sjá strax hvar matseðillinn er, hvernig þeir hafa samband og hvað fyrirtækið gerir. Í block-þemum er valmyndin Navigation-kubbur sem situr í hausnum (sniðmátshlutanum sem við fórum yfir í síðasta kafla), og þú breytir henni í Site Editor.
Hvað er í valmyndinni núna?
Farðu í Útlit → Ritill og veldu „Navigation“. Þar sérðu atriðin í valmyndinni og forskoðun af vefnum hægra megin.

Á sýnivefnum hefur enginn sett valmyndina upp sérstaklega, svo hún sýnir einfaldlega allar síður í stafrófsröð. Það er algengt á nýjum vefjum. Gestir þurfa ekki að sjá „Checkout“ eða prufusíðuna „Sample Page“ efst á hverri síðu, svo við skulum taka til.
Að setja upp eigin valmynd
- Opnaðu valmyndina til breytinga, annaðhvort með valkostunum við hana í Navigation-yfirlitinu eða með því að smella á valmyndina í hausnum í ritlinum.
- Smelltu á Navigation-kubbinn og opnaðu listayfirlitið (List View) til að sjá öll atriðin.
- Fjarlægðu atriði sem eiga ekki heima þar með þriggja punkta valmyndinni við þau.
- Bættu við atriði með plúsnum. Skrifaðu heiti síðu til að leita að henni, eða límdu inn slóð á annan vef.
- Dragðu atriðin til í þá röð sem þú vilt. Mikilvægast fyrst, „Hafa samband“ oft síðast.
- Til að búa til undirvalmynd skaltu velja atriði og bæta við því undiratriði (e. submenu).
- Smelltu á „Save“.
Valmyndin getur innihaldið fleira en síður: flokka, stakar færslur eða slóðir á aðra vefi. Heitið sem birtist þarf ekki að vera það sama og titill síðunnar; þú getur til dæmis látið síðuna „Matseðill og verð“ heita bara „Matseðill“ í valmyndinni.
ÁbendingFimm til sjö atriði eru góð þumalputtaregla. Ef þú þarft fleiri, flokkaðu þau í undirvalmyndir.
Í farsíma og á samfélagsmiðlum
Á litlum skjá fellur valmyndin sjálfkrafa saman í hnapp með þremur strikum (svokallaðan hamborgara), sem opnar hana í heilum skjá. Prófaðu alltaf hvernig valmyndin lítur út í síma. Tengla á Facebook, Instagram og aðra miðla er best að setja í Social Icons-kubbinn, til dæmis í fót vefsins. Hann sýnir sjálfkrafa rétt tákn fyrir hvern miðil.