WordPress frá grunni

Kafli 5 af 18

Kubbar og mynstur (patterns)

3 mín. lestur

Mynstur eru tilbúnar samsetningar af kubbum sem spara þér tíma. Hér lærirðu að finna þau, setja þau inn og búa til þín eigin.

Þú hefur nú kynnst stökum kubbum: efnisgreinum, fyrirsögnum, listum og myndum. En oft viltu setja upp heilan hluta í einu, til dæmis borða með mynd og texta, kafla með þremur dálkum eða hvatningu með hnappi. Til þess eru mynstur (patterns).

Hvað er mynstur?

Mynstur er tilbúin samsetning af kubbum, hönnuð til að passa við þemað þitt. Þegar þú setur mynstur inn færðu alla kubbana í því og getur svo skipt út texta og myndum eins og þér hentar. Mynstrin koma frá þemanu, frá WordPress sjálfu og stundum frá viðbótum.

Flipinn Patterns í kubbasafninu með flokkum eins og Starter content, About, Banners, Call to action, Contact, Footers, Gallery, Headers og Pages.
Mynstrum er raðað í flokka. Smelltu á flokk til að sjá mynstrin í honum.

Settu inn mynstur

  1. Opnaðu færslu eða síðu og smelltu á bláa plúsinn efst til vinstri.
  2. Veldu flipann „Patterns“.
  3. Veldu flokk, til dæmis „About“ eða „Call to action“, eða leitaðu í leitarreitnum.
  4. Smelltu á mynstrið sem þér líst á. Það er sett inn þar sem þú varst stödd/staddur í efninu.
  5. Skiptu út sýnitextanum og myndunum fyrir þitt eigið efni.

Á sýnivefnum eru meðal annars flokkarnir Starter content, About, Banners, Call to action, Contact, Featured, Footers, Gallery, Headers, Intro, Media og Pages. Flokkarnir og mynstrin fara eftir því hvaða þema og viðbætur eru á vefnum, svo listinn hjá þér getur litið öðruvísi út.

ÁbendingMynstur henta sérstaklega vel á síður eins og „Um okkur“ og „Hafa samband“. Þú færð snyrtilega uppsetningu án þess að raða hverjum kubbi saman sjálf(ur).

Þín eigin mynstur

Ef þú notar sömu samsetninguna aftur og aftur, til dæmis opnunartíma eða kynningu á viðburði, geturðu vistað hana sem eigið mynstur. Veldu kubbana, opnaðu valmyndina með punktunum þremur í tækjastikunni og veldu að búa til mynstur. Þá velurðu hvort mynstrið á að vera samstillt (synced): samstillt mynstur breytist alls staðar á vefnum þegar þú breytir því á einum stað, sem er hentugt fyrir upplýsingar eins og opnunartíma.

Hvað varð um færslugerðirnar?

Í eldri útgáfum WordPress var algengt að velja færslugerð (Post Format), til dæmis „Aside“, „Image“, „Video“ eða „Quote“, og þemað breytti þá útliti færslunnar. Stillingin er enn til og birtist sem „Format“ í stillingum færslunnar, sjálfgefið „Standard“. Í nýjum kubbaþemum skiptir hún hins vegar yfirleitt litlu máli. Ef þú vilt að færsla líti öðruvísi út er betra að nota kubba og mynstur, og þú getur látið „Standard“ standa óbreytt.

Í næsta kafla förum við yfir hvernig þú breytir færslum sem eru þegar til, tímasetur þær og eyðir þeim.