Kafli 14 af 18
Sniðmát, sniðmátshlutar og mynstur

Í block-þemum eru það sniðmát, sniðmátshlutar eins og haus og fótur, og mynstur sem stýra uppsetningu vefsins. Þau hafa tekið við af gömlu síðuhlutunum (widgets).
Í eldri WordPress-þemum voru síðuhlutar (e. widgets) notaðir til að setja efni í hliðardálk eða fót vefsins, til dæmis opnunartíma, nýjustu færslur eða leitarreit. Í block-þemum er þetta allt gert með kubbum, og þú raðar þeim í sniðmát og sniðmátshluta í Site Editor. Ef þú finnur ekki „Widgets“ undir Útliti er það ástæðan.
Sniðmát: uppsetning hverrar tegundar síðu
Sniðmát (e. template) segir til um hvernig ákveðin tegund síðu er sett upp. Ein færsla notar eitt sniðmát, bloggforsíðan annað og flokkasíður það þriðja. Ef þú breytir sniðmátinu fyrir stakar færslur breytast allar færslur í einu, því efnið sjálft er aðskilið frá uppsetningunni.
Sniðmátin finnurðu í Útlit → Ritill → Templates. Þar sérðu lista yfir þau sniðmát sem þemað og viðbætur leggja til, með smámynd af hverju og stuttri lýsingu.

- Smelltu á sniðmát, til dæmis „Blog Home“, til að opna það í ritlinum.
- Breyttu því eins og síðu: bættu við kubbum, færðu þá til eða fjarlægðu.
- Smelltu á „Save“. Breytingin gildir fyrir allar síður sem nota sniðmátið.
- Ef illa fer geturðu endurstillt sniðmátið á útgáfu þemans í valmyndinni við það.
Sniðmátshlutar: haus og fótur
Sniðmátshlutar (e. template parts) eru hlutar sem mörg sniðmát nota sameiginlega. Algengastir eru haus (Header) með heiti vefsins og valmynd, og fótur (Footer) neðst á hverri síðu. Fóturinn er einmitt staðurinn fyrir það sem áður fór í síðuhluta: heimilisfang, opnunartíma, símanúmer og tengla á samfélagsmiðla.
Til að breyta fætinum opnarðu hvaða sniðmát sem er, smellir á fótinn neðst og breytir textanum beint. Þú getur líka fundið hann undir Patterns í Site Editor, þar sem sniðmátshlutarnir eru flokkaðir sér efst í listanum. Breyting á fætinum birtist á öllum síðum vefsins í einu.

ÁbendingSettu opnunartíma og heimilisfang í fótinn frekar en á hverja síðu. Þá þarftu bara að uppfæra á einum stað þegar eitthvað breytist.
Mynstur: tilbúnar kubbasamsetningar
Mynstur (e. patterns) kynntumst við í kaflanum um kubbaritilinn: tilbúnar samsetningar kubba, til dæmis kynningarborði, verðtafla eða teymissíða. Undir Patterns í Site Editor sérðu öll mynstur sem eru í boði, flokkuð eftir efni, og með „Add Pattern“ geturðu búið til þín eigin. Ef mynstur er merkt samstillt (e. synced) uppfærist það alls staðar þar sem það er notað þegar þú breytir því. Það hentar vel fyrir efni sem birtist víða, til dæmis tilkynningu um sumaropnun.
Í næsta kafla skoðum við valmyndina sjálfa, sem er hluti af hausnum.