Kafli 13 af 18
Útlit vefsins í Site Editor

Í nýrri WordPress-þemum breytirðu útliti vefsins í Site Editor: litum, letri og uppsetningu, og sérð breytingarnar strax. Hér förum við yfir hvar hann er og hvað Styles gerir.
Útlit WordPress-vefs ræðst af þema (e. theme). Þemað segir til um liti, letur, uppröðun og hvernig haus og fótur vefsins líta út. Nýjustu þemu, til dæmis Twenty Twenty-Five sem sýnivefurinn Kaffihúsið Bolli notar, eru svokölluð block-þemu. Í þeim er allur vefurinn, ekki bara efnið, byggður úr kubbum, og þú breytir honum í sama ritli og þú þekkir úr færslunum.
Ef þú hefur unnið í eldri WordPress-vef manstu kannski eftir „Customize“-glugganum. Hann er enn til í eldri þemum, en í block-þemum hefur Site Editor tekið við hlutverki hans.
Að opna Site Editor
Farðu í Útlit → Ritill í valmyndinni vinstra megin. Þá opnast dökkt yfirlit sem heitir „Design“ með forskoðun af vefnum hægra megin og valmynd vinstra megin:

- Identity: heiti vefsins, merki (e. logo) og táknmynd vefs.
- Styles: litir, letur og annað sem gildir fyrir allan vefinn.
- Pages: síðurnar þínar, opnaðar í samhengi við útlitið.
- Navigation: valmyndir vefsins, sem við förum yfir í sérstökum kafla.
- Patterns og Templates: mynstur, sniðmát og sniðmátshlutar eins og haus og fótur. Um þau fjallar næsti kafli.
Styles: litir og letur fyrir allan vefinn
Smelltu á „Styles“ til að breyta heildarútlitinu. Í stað þess að lita hverja fyrirsögn fyrir sig breytirðu stílnum hér einu sinni, og hann gildir alls staðar.

- Byrjaðu á „Browse styles“ og prófaðu tilbúnu stílana. Forskoðunin breytist um leið.
- Farðu í „Colors“ til að laga litina að merki fyrirtækisins.
- Farðu í „Typography“ til að velja letur fyrir texta og fyrirsagnir.
- Smelltu á „Save“ efst þegar þú ert sátt/ur. Ekkert breytist á vefnum fyrr en þú vistar.
ÁbendingHaltu þig við tvo til þrjá liti og eitt til tvö letur. Einfalt og samræmt útlit virkar fagmannlegra en margir litir.
Þú getur líka skipt alveg um þema undir Útlit → Þemu. Það breytir öllu útliti vefsins í einu, svo prófaðu nýtt þema fyrst með forskoðun og helst á afriti af vefnum. Efnið þitt, færslur og síður, helst óbreytt þótt skipt sé um þema.