Hraðari WordPress-vefur

Kafli 4 af 5

Viðbætur, þema og þungur kóði

4 mín. lestur

Hver viðbót, hvert spjallbox og hver mælingarskrifta bætir kóða við vefinn. Hér lærirðu að finna það sem hægir á honum og að hreinsa til án þess að missa virkni.

Það er auðvelt að setja inn viðbót í WordPress, og þess vegna safnast þær upp. Ein fyrir snertiform, ein fyrir myndasýningu, ein fyrir samfélagsmiðla, ein sem einhver prófaði fyrir tveimur árum. Hver og ein getur bætt við CSS- og JavaScript-skrám sem vafrinn þarf að sækja, og stundum á öllum síðum vefsins, ekki bara þar sem viðbótin er notuð.

Farðu yfir viðbæturnar

Byrjaðu á að skoða hvað er uppsett. Farðu í Viðbætur → Uppsettar viðbætur:

Síðan Viðbætur í WordPress með fimm viðbótum. Akismet Anti-spam og Hello Dolly eru óvirkar. Two Factor, WooCommerce og Yoast SEO eru virkar og merktar með blárri línu til vinstri. Efst eru síurnar Allar (5), Virkar (3), Óvirkar (2) og Auto-updates Disabled (5).
Kaffihúsið Bolli er með fimm viðbætur, þar af þrjár virkar. Það er hófsamt; margir vefir eru með 30 eða fleiri.

Það er ekki fjöldinn sjálfur sem skiptir mestu, heldur hvað hver viðbót gerir. Lítil viðbót sem bætir öryggi innskráningar, eins og Two Factor á myndinni, hefur nær engin áhrif á hraðann fyrir gesti. Stór viðbót eins og vefverslun hefur meiri áhrif, en hún er líka nauðsynleg. Spurðu þig um hverja og eina:

  1. Er þessi viðbót enn í notkun? Ef ekki, gerðu hana óvirka og eyddu henni.
  2. Gerir önnur viðbót eða WordPress sjálft það sama? Margt sem áður þurfti viðbót, eins og myndasöfn og hnappar, er nú innbyggt í kubbaritilinn.
  3. Bætir hún einhverju við sem gestir sjá, til dæmis spjallboxi, sprettiglugga eða hreyfimyndum? Það er þar sem kostnaðurinn er yfirleitt mestur.
  4. Mældu hraðann, gerðu grunsamlega viðbót óvirka, og mældu aftur. Þá sérðu svart á hvítu hvað hún kostar.

ÁbendingGerðu prófanir eins og þessa helst á afriti af vefnum (staging), sérstaklega ef viðbótin tengist greiðslum eða pöntunum.

Þema og síðusmiðir

Þemað hefur líka mikil áhrif. Létt block-þemu eins og Twenty Twenty-Five hlaða litlu umfram það sem síðan notar. Mörg „fjölnota“ þemu sem lofa öllu mögulegu, og síðusmiðir (e. page builders) sem leggjast ofan á WordPress, hlaða hins vegar oft miklum kóða á hverja síðu. Síðusmiðir búa líka til flóknari HTML-kóða en kubbaritillinn, sem vafrinn þarf lengri tíma til að vinna úr.

Þetta þýðir ekki að þú þurfir að skipta um þema á morgun. Það er stórt verk og sjaldan það fyrsta sem ætti að gera. En ef vefurinn er hvort eð er á leið í endurhönnun er gott að hafa hraðann í huga þegar þema er valið.

Skriftur frá þriðja aðila

Margt af þyngsta kóðanum á vefnum kemur ekki frá WordPress heldur frá öðrum þjónustum: spjallgluggar, mælingar eins og Google Analytics og Meta Pixel, innfelld kort, umsagnaborðar og bókunarkerfi. Hver þeirra sækir skrár frá sínum eigin þjóni, og vefurinn þinn ræður engu um hve hratt sá þjónn svarar.

  • Spyrðu hvort þú notir í raun gögnin úr hverri mælingu. Ef enginn skoðar þau má fjarlægja skriftuna.
  • Hladdu spjallglugga aðeins þegar gesturinn smellir á hann, ef þjónustan býður upp á það.
  • Settu kort og myndbönd aðeins á þær síður sem þurfa þau, ekki í fót vefsins.
  • Láttu mælingar bíða þangað til gesturinn hefur samþykkt vafrakökur. Það er bæði betra fyrir persónuvernd og hraða.

Í PageSpeed-skýrslunni birtist þetta oft sem „Render blocking requests“, eða beiðnir sem hindra birtingu. Það eru skrár sem vafrinn verður að sækja og keyra áður en hann getur sýnt nokkuð á skjánum. Á vef Vefaldar í fyrsta kaflanum var áætlaður sparnaður 270 millisekúndur. Að laga þetta krefst yfirleitt þess að skrár séu hlaðnar seinna eða sameinaðar, sem skyndiminnisviðbætur geta stundum gert, en það þarf að prófa vel.

Í síðasta kaflanum skoðum við hvað þú getur gert þegar ekkert af þessu dugar og vandinn liggur í hýsingunni sjálfri.