Leiðbeiningar
Google Tag Manager eða Google Analytics: hver er munurinn?

Nöfnin eru lík og tólin oft notuð saman, en þau gera ólíka hluti. Google Analytics mælir og sýnir gögnin. Tag Manager er verkfærakassinn sem setur mælikóðana á vefinn.
Google Analytics og Google Tag Manager eru bæði ókeypis tól frá Google og eru oft nefnd í sömu andrá. Þau eru þó ekki sami hluturinn og þau keppa ekki hvort við annað. Annað safnar og sýnir gögnin, hitt er leið til að koma mælikóðum á vefinn.
Google Analytics: mælingin sjálf
Google Analytics 4 (GA4) er það sem þú opnar til að sjá hversu margir heimsækja vefinn, hvaðan þeir koma, hvaða síður þeir skoða og hvort þeir senda inn fyrirspurn eða kaupa. Til að GA4 virki þarf lítill mælikóði (sem byrjar á G-) að vera á öllum síðum vefsins.
Google Tag Manager: verkfærakassinn
Google Tag Manager (GTM) mælir ekkert sjálft og sýnir engar skýrslur. Það er gámur (container) sem þú setur einu sinni á vefinn, og í gegnum vefviðmót GTM ræður þú síðan hvaða kóðar keyra, hvar og hvenær. Þannig getur þú bætt við eða breytt mælingum án þess að snerta kóða vefsins.
- Tags (kóðar): það sem á að keyra, til dæmis GA4, Google Ads-mæling eða Meta Pixel.
- Triggers (kveikjur): hvenær kóðinn keyrir, til dæmis á öllum síðum, þegar form er sent eða smellt á hnapp.
- Variables (breytur): upplýsingar sem kóðarnir nota, til dæmis slóð síðunnar eða upphæð pöntunar.
GTM hefur líka forskoðunarham (Preview) þar sem þú sérð nákvæmlega hvaða kóðar keyra áður en þú birtir breytingarnar, og útgáfusögu svo hægt sé að snúa til baka.
Hvort á ég að nota?
- Bara Google Analytics og ekkert annað: settu GA4-kóðann beint á vefinn, til dæmis með viðbót eins og Site Kit by Google. GTM bætir þá litlu við.
- Fleiri en ein mæling, til dæmis GA4, Google Ads og Meta Pixel: notaðu GTM. Þá er allt á einum stað og einfaldara að halda utan um það.
- Mælingar á atburðum eins og innsendum formum, smellum á símanúmer eða niðurhali: GTM gerir þær mun auðveldari án forritunar.
ÁbendingSettu GA4 aldrei upp á báða vegu í einu, bæði beint og í gegnum GTM. Þá telst hver heimsókn tvisvar og tölurnar verða rangar.
Tvennt sem þarf að hafa í huga
- Vafrakökusamþykki: GA4, Google Ads og Meta Pixel mega ekki keyra fyrr en gestur hefur samþykkt. GTM styður Google Consent Mode, svo kóðarnir geta beðið eftir samþykkinu sjálfkrafa.
- Hraði: hver kóði sem bætt er við í GTM hleðst á vefnum. Það er auðvelt að safna upp kóðum sem enginn notar lengur, svo farðu reglulega yfir gáminn og eyddu því sem er óþarft.


