Frá 1. júlí 2023 hætti Universal Analytics að safna gögnum. Ef vefurinn þinn notar enn gamla mælikóðann eru engar nýjar mælingar að berast.

Google hætti að vinna úr gögnum í hefðbundnum Universal Analytics-eignum 1. júlí 2023. Arftakinn er Google Analytics 4 (GA4), sem byggir á annarri hugmyndafræði þar sem allt er mælt sem atburðir (events) í stað síðuflettinga og lota.
Hvernig veit ég hvort vefurinn minn er enn á gamla kerfinu?
Mælikóði Universal Analytics byrjar á UA- (til dæmis UA-12345678-1), en mælikóði GA4 byrjar á G-. Ef aðeins UA-kóði er á vefnum eru engar nýjar mælingar að berast.
Svona skiptirðu yfir
- Stofnaðu GA4-eign í Google Analytics, eða opnaðu þá sem Google stofnaði sjálfkrafa fyrir þig.
- Settu GA4-mælikóðann (G-…) á vefinn, til dæmis með viðbót eða beint í haus síðunnar.
- Skilgreindu mikilvægustu atburðina sem key events, eins og innsend form og kaup.
- Fjarlægðu gamla UA-kóðann svo vefurinn sendi ekki gagnslausar beiðnir.
ÁbendingGögnin úr Universal Analytics voru ekki flutt yfir í GA4. Sagan byrjar upp á nýtt frá þeim degi sem GA4 var sett upp.


