Kafli 5 af 5
Þegar hýsingin er flöskuhálsinn

Stundum er vefurinn hægur sama hvað þú gerir, því þjónninn sjálfur er of seinn að svara. Hér lærirðu að þekkja merkin, hvað skiptir máli í hýsingu og í hvaða röð best er að vinna.
Myndir, skyndiminni og viðbætur skipta öllu máli, en þær geta ekki bætt upp fyrir hægan þjón. Ef þjónninn er lengi að svara bíður allt annað á meðan: vafrinn getur ekki byrjað að sækja myndir eða CSS fyrr en hann hefur fengið fyrstu svörin frá þjóninum.
TTFB: hve lengi bíður vafrinn?
TTFB (Time to First Byte) er tíminn frá því vafrinn biður um síðu þangað til fyrstu gögnin berast frá þjóninum. Hún er góður mælikvarði á hýsinguna. Á vel stilltum vef með skyndiminni ætti TTFB að vera vel undir hálfri sekúndu, og Google telur 0,8 sekúndur efri mörk þess sem er ásættanlegt. Þú finnur hana í PageSpeed Insights, bæði í raungögnunum ef þau eru til og í ábendingunum, oft undir heiti sem vísar í svartíma þjónsins (e. server response time).
Ef TTFB er há þótt skyndiminni sé virkt, eða ef stjórnborðið í WordPress er hægt og hikandi, er hýsingin líkleg skýring.
Það sem skiptir máli í hýsingu
- PHP-útgáfa: WordPress er skrifað í PHP, og hver ný útgáfa af PHP er hraðvirkari en sú fyrri. Vefur á gamalli útgáfu er bæði hægari og óöruggari.
- Nægt minni og afl: á ódýrustu sameiginlegu hýsingunni deila hundruð vefja sama þjóni. Ef einn þeirra fær mikla umferð hægist á öllum hinum.
- Staðsetning þjóns: ef gestirnir eru á Íslandi er best að þjónninn sé hér eða nálægt. Hver ferð gagna yfir Atlantshafið bætir við töf.
- Skyndiminni á þjóninum: hýsing sem sér um síðuskyndiminni og object cache sparar þér viðbætur og stillingar.
- Gagnagrunnur: hraðvirkur gagnagrunnsþjónn og nútímaleg útgáfa af MySQL eða MariaDB.
Hvað segir Site Health?
WordPress er með innbyggt tól sem gefur vísbendingar um ástand vefsins og hýsingarinnar. Farðu í Verkfæri → Site Health:

Á Status-flipanum listar WordPress atriði sem þarf að skoða. Atriði merkt Performance tengjast hraða, og WordPress varar meðal annars við ef PHP-útgáfan er orðin gömul eða ef ekkert object cache er virkt. Á sýnivefnum bendir það líka á að fjarlægja óvirkar viðbætur, sem við ræddum í síðasta kafla.
Á Info-flipanum eru tæknilegar upplýsingar. Undir „Server“ sérðu meðal annars PHP-útgáfuna og hámarksminni, og undir „Database“ hvaða gagnagrunnur er notaður:

ÁbendingEf þú veist ekki hvort PHP-útgáfan er nógu ný skaltu afrita upplýsingarnar með „Copy site info to clipboard“ efst á Info-flipanum og senda hýsingaraðilanum.
Ef hýsingin reynist vera flöskuhálsinn er stundum nóg að uppfæra PHP eða færa sig í stærri pakka hjá sama aðila. Annars getur borgað sig að flytja vefinn í hýsingu sem er sérsniðin að WordPress. Flutningur hljómar stórt, en þarf ekki að valda neinum niðritíma ef hann er vel undirbúinn.
Samantekt: í hvaða röð áttu að vinna?
Nú hefurðu farið yfir helstu ástæður þess að WordPress-vefir verða hægir. Ef þú veist ekki hvar á að byrja er þetta röðin sem skilar oftast mestu fyrir minnsta fyrirhöfn:
- Mældu: keyrðu PageSpeed Insights á forsíðunni og mikilvægustu undirsíðunum og skráðu niðurstöðurnar.
- Myndir: minnkaðu og þjappaðu stórum myndum og notaðu WebP. Oft stærsti sigurinn.
- Skyndiminni: kveiktu á síðuskyndiminni og vafraskyndiminni, hjá hýsingunni eða með einni viðbót.
- Viðbætur og skriftur: fjarlægðu það sem ekki er notað og passaðu sérstaklega upp á skriftur frá þriðja aðila.
- Hýsing: ef TTFB er enn há, athugaðu PHP-útgáfu og hýsinguna sjálfa.
- Mældu aftur og berðu saman við fyrstu mælinguna.
Hraði er ekki eitthvað sem þú lagar einu sinni. Nýjar myndir, nýjar viðbætur og nýjar skriftur bætast við með tímanum, svo það borgar sig að mæla vefinn á nokkurra mánaða fresti. Gangi þér vel.