Allar fréttir

Öryggi

PHP 8.2 missir öryggisstuðning um áramót: er vefurinn þinn tilbúinn?

· 4 mín. lestur

Tímalína PHP-útgáfa 8.2 til 8.5. Öryggisstuðningi við PHP 8.2 lýkur 31. desember 2026.

Eftir 31. desember 2026 fær PHP 8.2 engar öryggisuppfærslur. Svona athugarðu hvaða útgáfu WordPress-vefurinn þinn keyrir og hvernig best er að uppfæra.

PHP er forritunarmálið sem WordPress er skrifað í, og hver vefþjónn keyrir ákveðna útgáfu af því. Hver útgáfa fær tveggja ára virkan stuðning og síðan tvö ár þar sem eingöngu öryggisgöllum er lokað. Samkvæmt útgáfuáætlun PHP-verkefnisins lýkur þeim síðari hjá PHP 8.2 þann 31. desember 2026.

Hvað þýðir þetta í raun?

Vefurinn hættir ekki að virka á nýársdag. En veikleikar sem finnast í PHP 8.2 eftir áramót verða ekki lagaðir, svo vefurinn keyrir á grunni sem enginn heldur lengur við og áhættan eykst með hverjum mánuði.

Hýsingaraðilar færa viðskiptavini gjarnan sjálfkrafa á nýrri útgáfu þegar stuðningi lýkur. Ef viðbætur eða þema vefsins eru ekki tilbúin fyrir nýju útgáfuna getur vefurinn brotnað án fyrirvara, og þá er betra að hafa prófað skiptin fyrirfram.

Hvaða útgáfur eru studdar?

  • PHP 8.3: öryggisuppfærslur til 31. desember 2027.
  • PHP 8.4: virkur stuðningur út árið 2026 og öryggisuppfærslur til 31. desember 2028.
  • PHP 8.5: nýjasta útgáfan, kom út í nóvember 2025.

Svona athugarðu útgáfuna

  1. Skráðu þig inn í stjórnborð WordPress og opnaðu Verkfæri → Heilsa vefsins (Tools → Site Health).
  2. Veldu flipann Upplýsingar (Info) og opnaðu hlutann Netþjónn (Server). Þar stendur hvaða PHP-útgáfu vefurinn keyrir.
  3. Ef þar stendur 8.2 eða lægra er kominn tími til að skipuleggja uppfærslu.

Uppfærðu í réttri röð

Örugga leiðin er að uppfæra fyrst WordPress, viðbætur og þema, prófa síðan nýju PHP-útgáfuna á afriti af vefnum (staging) og skipta ekki fyrr en allt virkar þar. Taktu alltaf afrit áður en byrjað er, svo hægt sé að snúa til baka ef eitthvað fer úrskeiðis.

Fleiri fréttir