Allar fréttir

Tækni

PHP 8.5 komið út: hvað þýðir það fyrir WordPress-vefinn?

· 3 mín. lestur

PHP 8.5 með kóðadæmi sem sýnir nýja pipe-virkjann.

Ný útgáfa PHP kom út í nóvember 2025. Hún er spennandi fyrir forritara, en fyrir eigendur WordPress-vefja er best að flýta sér hægt.

PHP 8.5, nýjasta útgáfa forritunarmálsins sem WordPress er skrifað í, kom út í nóvember 2025. Eins og venjulega fær útgáfan tveggja ára virkan stuðning og síðan tvö ár af öryggisuppfærslum.

Helstu nýjungar

  • Pipe-virkinn (|>) sem gerir kleift að keðja saman föll á læsilegri hátt.
  • Ný innbyggð föll eins og array_first() og array_last().
  • Ný viðbót til að vinna með vefslóðir (URI) á öruggari og staðlaðri hátt.

Þetta eru fyrst og fremst breytingar fyrir forritara. Þeir sem skrifa viðbætur og þemu geta smám saman nýtt sér nýjungarnar, en það hefur lítil bein áhrif á þann sem rekur vefinn.

Á ég að uppfæra strax?

Yfirleitt ekki. Það tekur tíma fyrir viðbætur og þemu að verða fullprófuð á nýrri PHP-útgáfu. Mikilvægara er að vefurinn keyri á útgáfu sem fær enn öryggisuppfærslur: PHP 8.2 missir öryggisstuðning í lok árs 2026, svo þá er rétti tíminn að færa sig á 8.3 eða 8.4.

ÁbendingPrófaðu alltaf nýja PHP-útgáfu á afriti af vefnum (staging) áður en þú skiptir á lifandi vefnum.

Fleiri fréttir