Að flytja WordPress-vef milli hýsinga

Kafli 2 af 4

Flutningurinn sjálfur: með viðbót eða handvirkt

3 mín. lestur

Það eru tvær meginleiðir til að flytja WordPress-vef: með flutningsviðbót eða handvirkt með SFTP og gagnagrunni. Hér sérðu báðar, og hvers vegna innbyggði XML-útflutningurinn dugar ekki einn og sér.

Þegar undirbúningnum er lokið og afritið er komið á öruggan stað er komið að flutningnum sjálfum. Markmiðið er einfalt: nákvæmt eintak af vefnum á nýja þjóninum, sem þú getur prófað áður en nokkur gestur sér það.

Hvað með Verkfæri → Flytja út?

WordPress hefur innbyggt útflutningstól undir Verkfæri → Flytja út. Það býr til XML-skrá á sniðinu WXR, og margir halda að það sé leiðin til að flytja vefinn. Svo er ekki.

Síðan Flytja út í WordPress. Textinn útskýrir að WordPress búi til XML-skrá á sniðinu WXR með færslum, síðum, athugasemdum, sérreitum, flokkum og efnisorðum. Valið er „Allt innihald“ og neðar eru valkostirnir Færslur, Síður, Products, Variations, Orders, Refunds, Coupons og Gagnamiðlun, auk hnappsins „Hlaða niður útflutningsskrá“.
Útflutningurinn nær yfir efni: færslur, síður, athugasemdir, flokka og, á sýnivefnum, vörur og pantanir úr WooCommerce. Þema, viðbætur og stillingar fylgja ekki.

XML-skráin inniheldur efnið, en ekki þemað, viðbæturnar, stillingarnar, notendalykilorð eða útlitsbreytingar. Myndirnar sjálfar eru heldur ekki í skránni, aðeins tilvísanir í þær. Á móttökuendanum er WordPress-innflytjandinn undir Verkfæri → Flytja inn, sem þarf fyrst að setja upp með „Install Now“.

Síðan Flytja inn í WordPress með lista yfir innflytjendur: Blogger, LiveJournal, Movable Type og TypePad, RSS-veita, Tumblr, Umbreyta flokkum og efnisorðum, WooCommerce products (CSV), WooCommerce tax rates (CSV) og WordPress, hver með tenglinum Install Now eða Ræsa Innflytjanda.
Neðst er innflytjandinn „WordPress“ sem les útflutningsskrána. Hann hentar til að færa efni yfir á nýjan vef, ekki til að flytja heilan vef.

XML-útflutningur hentar því þegar þú vilt færa efni yfir á nýjan vef með nýju útliti, eða sameina tvo vefi. Til að flytja heilan vef óbreyttan þarftu aðra leið.

Leið 1: flutningsviðbót

Flutningsviðbætur pakka öllum vefnum, skrám og gagnagrunni, saman í eina skrá sem þú hleður svo inn á nýja vefinn. Leitaðu að „migration“ undir Viðbætur → Add Plugin og þú sérðu þær helstu.

Síðan Bæta við viðbót í WordPress með leitarorðinu migration. Niðurstöðurnar eru UpdraftPlus: WP Backup & Migration Plugin, All-in-One WP Migration and Backup, Duplicator og Backup Migration, hver með hnappinum Install Now.
UpdraftPlus, All-in-One WP Migration og Duplicator eru meðal þeirra mest notuðu. Athugaðu síðustu uppfærslu og samhæfni áður en þú velur.
  1. Settu upp sömu flutningsviðbót á gamla vefnum og á nýrri, tómri WordPress-uppsetningu á nýja þjóninum.
  2. Búðu til flutningsskrá (afrit) á gamla vefnum og sæktu hana.
  3. Hladdu skránni inn á nýja vefinn með sömu viðbót og keyrðu endurheimtina.
  4. Skráðu þig inn á nýja vefinn. Notendurnir og lykilorðin koma frá gamla vefnum.

ÁbendingÓkeypis útgáfur sumra viðbóta setja hámark á stærð vefsins. Stórar vefverslanir með mikið af myndum fara oft yfir það.

Leið 2: handvirkur flutningur

Handvirkt flytur þú skrárnar með SFTP-forriti, til dæmis FileZilla, og gagnagrunninn með útflutningi úr phpMyAdmin eða skipanalínutólinu WP-CLI. Á nýja þjóninum býrðu til nýjan gagnagrunn, flytur afritið inn og uppfærir wp-config.php með nýju heiti, notanda og lykilorði gagnagrunnsins.

Ef slóð vefsins breytist þarf að skipta gömlu slóðinni út fyrir þá nýju í öllum gagnagrunninum. Ekki gera það með einfaldri leit og skiptingu í textaskrá, því WordPress geymir sumt í svokölluðu raðgreindu formi (e. serialized) þar sem lengd textans er skráð með. Notaðu tól sem ræður við það, til dæmis „wp search-replace“ í WP-CLI eða viðbót sem er gerð til þess.

Hvor leiðin sem er valin skaltu prófa vefinn á nýja þjóninum áður en DNS er breytt. Það má gera með hosts-skránni á eigin tölvu: þar seturðu inn IP-tölu nýja þjónsins og lénið, og þá opnar tölvan þín nýja vefinn á meðan allir aðrir sjá enn þann gamla. Mundu að taka línuna út þegar prófunum er lokið. Í næsta kafla förum við yfir lénið og DNS.