Að flytja WordPress-vef milli hýsinga

Kafli 1 af 4

Undirbúningur og afrit

3 mín. lestur

Góður flutningur er að mestu leyti undirbúningur. Hér förum við yfir úr hverju WordPress-vefur er gerður, hvernig þú tekur fullt afrit og hvað þarf að skrá hjá sér áður en hafist er handa.

Það eru margar ástæður til að flytja WordPress-vef á nýja hýsingu: vefurinn er orðinn hægur, þjónustan er ekki nógu góð, verðið hefur hækkað eða þú vilt einfaldlega hafa allt á einum stað. Flutningurinn sjálfur tekur oft ekki langan tíma. Það sem skilur á milli vel heppnaðs flutnings og slæmrar helgar er undirbúningurinn.

Úr hverju er WordPress-vefur gerður?

Til að flytja vef þarftu að vita hvað á að flytja. WordPress-vefur samanstendur af tveimur hlutum sem þurfa báðir að fara yfir:

  • Skrár: sjálft WordPress-kerfið, þemu, viðbætur og allar myndir og skjöl sem hlaðið hefur verið upp. Mikilvægasta mappan er wp-content, og stillingaskráin wp-config.php segir WordPress hvar gagnagrunnurinn er.
  • Gagnagrunnur: allt textaefnið, það er færslur, síður, athugasemdir, notendur, stillingar og, ef þú ert með vefverslun, vörur og pantanir. Hann er yfirleitt MySQL eða MariaDB.

Upplýsingar um gagnagrunninn finnurðu undir Verkfæri → Site Health, á Info-flipanum. Þar er hlutinn „Database“ sem sýnir meðal annars heiti gagnagrunnsins og forskeyti taflanna (Table prefix).

Info-flipinn í Site Health í WordPress með hlutann Database opinn. Þar eru línur fyrir Database Extension, Server version, Client version, Gagnagrunnsnotandi, Gagnagrunnsþjónn, Nafn gagnagrunns, Table prefix sem er wp_ og Database charset sem er utf8mb4.
Sýnivefurinn keyrir í prófunarumhverfi, svo hér standa sýnigildi. Á venjulegum vef sérðu raunverulegt heiti gagnagrunnsins og þjónsins. Forskeytið, hér wp_, þarf að passa á nýja staðnum.

Skoðaðu líka Stillingar → Almennt. Reitirnir „WordPress vefslóð (URL)“ og „Slóð á vefinn (URL)“ segja til um hvaða slóð vefurinn telur sig vera á. Skráðu þær hjá þér; þær skipta máli ef vefurinn skiptir líka um lén eða fer úr http yfir í https.

Síðan Almennar stillingar í WordPress fyrir Kaffihúsið Bolli. Reitirnir WordPress vefslóð (URL) og Slóð á vefinn (URL) eru gráir og innihalda báðir slóðina http://127.0.0.1:9400.
Á sýnivefnum eru slóðirnar gráar, sem þýðir að þær eru festar í stillingaskrá vefsins og ekki hægt að breyta þeim hér.

Gátlisti fyrir flutning

  1. Taktu fullt afrit af bæði skrám og gagnagrunni og geymdu það utan gamla þjónsins, til dæmis á eigin tölvu. Afrit sem liggur bara á þjóninum sem þú ert að yfirgefa er lítils virði.
  2. Skráðu allar DNS-færslur lénsins eins og þær eru núna: A, CNAME, MX, TXT og aðrar. MX-færslurnar stýra tölvupóstinum og eru þær sem oftast týnast.
  3. Kannaðu hvar tölvupósturinn er hýstur. Ef hann er hjá gamla hýsingaraðilanum þarf að flytja hann sérstaklega eða færa annað.
  4. Lækkaðu TTL (Time To Live) á DNS-færslunum, til dæmis í 300 sekúndur, einum til tveimur dögum fyrir flutninginn. Þá taka breytingar á DNS fljótt gildi þegar að því kemur.
  5. Gakktu úr skugga um að þú hafir aðgang að öllu: stjórnborði gömlu hýsingarinnar, nýju hýsingunni og þeim stað þar sem lénið er skráð.
  6. Veldu tíma þegar umferð er lítil, til dæmis að kvöldi eða um helgi, og helst ekki rétt fyrir stóra útsölu.

ÁbendingTaktu skjámynd af DNS-stillingunum hjá gamla aðilanum. Ef eitthvað gleymist er auðvelt að fletta því upp seinna, jafnvel eftir að gömlu þjónustunni hefur verið lokað.

Ef vefurinn er vefverslun eða tekur við bókunum skaltu líka skipuleggja stutt tímabil þar sem engu er breytt á gamla vefnum. Pöntun sem berst gamla þjóninum eftir að gagnagrunnurinn hefur verið afritaður skilar sér annars ekki yfir. Í næsta kafla förum við yfir flutninginn sjálfan.