Kafli 1 af 5
Mældu hraðann: PageSpeed og Core Web Vitals

Áður en þú lagar nokkuð þarftu að vita hvar vefurinn stendur. Hér lærirðu að mæla hraðann með PageSpeed Insights og að lesa úr tölunum sem Google kallar Core Web Vitals.
Hægur vefur kostar meira en flestir halda. Gestir gefast upp ef síðan birtist ekki á örfáum sekúndum, sérstaklega í síma, og Google tekur mið af upplifun notenda þegar hann raðar leitarniðurstöðum. Góðu fréttirnar eru að flestir WordPress-vefir eiga mikið inni, og oft eru það fáeinar einfaldar breytingar sem skila mestu.
Fyrsta skrefið er alltaf að mæla. Annars veistu ekki hvað þarf að laga, og ekki heldur hvort breytingarnar skiluðu einhverju.
Að mæla með PageSpeed Insights
- Opnaðu pagespeed.web.dev í vafranum.
- Límdu inn slóð vefsins, til dæmis forsíðuna, og smelltu á „Analyze“.
- Bíddu í hálfa til eina mínútu meðan Google hleður síðunni og mælir.
- Skoðaðu fyrst niðurstöðurnar fyrir farsíma (Mobile). Þær eru yfirleitt lakari en fyrir tölvu og skipta mestu, því flestir gestir koma úr síma.
- Mældu líka mikilvægustu undirsíðurnar, til dæmis vöru- eða þjónustusíðu. Þær geta verið allt öðruvísi en forsíðan.
Hér fyrir neðan sérðu skýrslu fyrir forsíðu Vefaldar sjálfrar, mælda eins og hún birtist í síma. Efst eru fjórar einkunnir af 100: Performance (hraði), Accessibility (aðgengi), Best Practices (góðar venjur) og SEO (leitarvélabestun).

Core Web Vitals: þrjár tölur sem skipta máli
Google hefur valið þrjár mælingar sem lýsa upplifun gesta best og kallar þær Core Web Vitals. Þú þarft ekki að skilja tæknina á bak við þær, bara hvað þær segja og hvaða mörk gilda:
- LCP (Largest Contentful Paint): hve lengi það tekur stærsta hlutinn efst á síðunni, oft forsíðumynd eða stór fyrirsögn, að birtast. Markmiðið er 2,5 sekúndur eða minna.
- INP (Interaction to Next Paint): hve fljótt síðan bregst við þegar gestur smellir eða pikkar. Markmiðið er 200 millisekúndur eða minna.
- CLS (Cumulative Layout Shift): hve mikið efnið hoppar til meðan síðan hleðst, til dæmis þegar mynd ýtir texta niður rétt áður en þú ýtir á hnapp. Markmiðið er 0,1 eða minna.
Í dæminu er LCP 3,1 sekúnda, sem er yfir mörkunum, á meðan CLS er 0, sem er fullkomið. INP sést ekki í þessari skýrslu, því það er aðeins hægt að mæla þegar raunverulegt fólk notar síðuna. Í staðinn sýnir skýrslan Total Blocking Time, sem gefur vísbendingu um það sama.
Rannsóknarstofugögn og raungögn
PageSpeed Insights sýnir tvenns konar niðurstöður, og það er gott að þekkja muninn. Rannsóknarstofugögn (e. lab data) koma úr einni prófun sem Google keyrir á stundinni, með hermdum síma og hægri nettengingu. Það er það sem þú sást á myndinni hér að ofan. Þau eru frábær til að finna vandamál og prófa breytingar, en sveiflast milli mælinga.
Raungögn (e. field data) koma frá raunverulegum gestum sem nota Chrome, safnað yfir síðustu 28 daga. Þau birtast efst í PageSpeed Insights undir „Discover what your real users are experiencing“, en aðeins ef vefurinn fær næga umferð. Það eru raungögnin sem Google notar þegar hann metur vefinn, svo ef þau eru til skaltu taka mest mark á þeim.
ÁbendingMældu þrisvar og taktu meðaltalið. Ein mæling getur verið óheppin, til dæmis ef þjónninn var upptekinn akkúrat þá.
Neðar í skýrslunni er röð af smámyndum sem sýnir hvernig síðan birtist smám saman, og listi af ábendingum sem heitir „Insights“. Hver ábending segir hvað hægir á síðunni og hve mikið má spara með því að laga hana.

Ábendingarnar eru oft tæknilegar og það er ekki nauðsynlegt að laga þær allar. Í næstu köflum förum við yfir þær aðgerðir sem skila mestu á venjulegum WordPress-vef, og byrjum á þeirri sem oftast skiptir mestu: myndunum.