Leiðbeiningar
Hvað er PageSpeed Insights og hvernig les ég úr því?

PageSpeed Insights gefur vefnum einkunn frá 0 til 100 og fullt af tölum. Hér er hvað þær þýða, hvaða tölur skipta máli og hvað þú getur hunsað.
PageSpeed Insights er ókeypis tól frá Google á pagespeed.web.dev. Þú slærð inn slóð og færð skýrslu um hversu hraður vefurinn er, bæði í farsíma og tölvu. Skýrslan getur virst yfirþyrmandi í fyrstu, en hún er í raun tvö aðskilin próf sem gott er að kunna að greina á milli.
Tvenns konar gögn: raungögn og prófun
- Raungögn (Discover what your real users are experiencing): mælingar frá raunverulegum Chrome-notendum síðustu 28 daga. Þetta er það sem Google notar sjálft. Ef vefurinn hefur litla umferð birtist þessi hluti ekki.
- Prófun (Diagnose performance issues): ein hermd hleðsla á meðalsíma með hægri tengingu, keyrð með Lighthouse. Hún gefur einkunnina 0 til 100 og ábendingar um hvað megi bæta.
Raungögnin segja hvernig gestum líður. Prófunin segir hvers vegna. Ef þau tvö eru ósammála skaltu treysta raungögnunum betur.
Einkunnin og litirnir

Einkunnin er flokkuð eftir litum: rautt 0 til 49, appelsínugult 50 til 89 og grænt 90 til 100. Hún breytist aðeins á milli prófana, svo ekki örvænta þó hún hoppi um nokkur stig. Á farsíma er hún nær alltaf lægri en á tölvu, því prófunin líkir eftir hægari síma og tengingu.
Mælingarnar, ein af annarri
- LCP (Largest Contentful Paint): hvenær stærsta efnið, oftast aðalmynd eða fyrirsögn, er komið á skjáinn. Gott er 2,5 sekúndur eða minna.
- INP (Interaction to Next Paint): hversu fljótt síðan bregst við smellum og innslætti. Gott er 200 millisekúndur eða minna. Sést aðeins í raungögnum.
- CLS (Cumulative Layout Shift): hversu mikið síðan hoppar til á meðan hún hleðst. Gott er 0,1 eða minna.
- FCP (First Contentful Paint): hvenær fyrsta efnið birtist yfirhöfuð.
- TBT (Total Blocking Time): hversu lengi JavaScript lokar á síðuna í prófuninni. Hefur mikið vægi í einkunninni og tengist INP.
- Speed Index: hversu hratt síðan fyllist sjónrænt.
LCP, INP og CLS eru Core Web Vitals, þær þrjár mælingar sem Google notar til að meta upplifun. Ef þær eru grænar í raungögnunum stendur vefurinn sig vel, óháð einkunninni.
Hvað á að gera við ábendingarnar?

Neðst í skýrslunni eru ábendingar með áætluðum sparnaði. Ekki reyna að laga allt: byrjaðu á því sem sparar mest. Algengustu stóru sigrarnir á WordPress-vefjum eru of stórar myndir, skortur á skyndiminni og of margar eða þungar viðbætur.
ÁbendingPrófaðu nokkrar mikilvægar síður, ekki bara forsíðuna. Vöru- og greinasíður eru oft hægari og fá jafn marga gesti úr Google.


