Allar fréttir

Hraði

INP tekur við af FID í Core Web Vitals hjá Google

· 4 mín. lestur

FID víkur fyrir INP. Kvarði INP: gott undir 200 ms, þarfnast úrbóta 200 til 500 ms, lélegt yfir 500 ms.

Frá 12. mars 2024 mælir Google viðbragðsflýti vefja með INP í stað FID. Nýi mælikvarðinn er strangari og vefur sem stóðst FID getur fallið á INP.

Core Web Vitals eru þrír mælikvarðar sem Google notar til að meta upplifun gesta á vefnum: hleðsluhraða (LCP), stöðugleika útlitsins (CLS) og viðbragðsflýti. Þann 12. mars 2024 skipti Google út mælikvarðanum fyrir viðbragðsflýti, þegar First Input Delay (FID) vék fyrir Interaction to Next Paint (INP).

Hver er munurinn?

FID mældi aðeins töfina við fyrstu snertingu gestsins við síðuna. INP mælir viðbragðið við öllum smellum, snertingum og innslætti á meðan heimsókninni stendur og miðar við eitt af hægustu viðbrögðunum. Hægur vefur getur því ekki lengur falið sig á bak við snögga fyrstu snertingu.

Viðmiðin

  • Gott: 200 millisekúndur eða minna.
  • Þarfnast úrbóta: 200 til 500 millisekúndur.
  • Lélegt: yfir 500 millisekúndur.

Hvað hægir á WordPress-vefjum?

  • Of mikið JavaScript frá viðbótum, síðusmiðum og þemum.
  • Kóði frá þriðja aðila, eins og spjallgluggar, auglýsinga- og mælingakóði.
  • Þungar síður með mjög mörgum einingum, sem vafrinn þarf að endurreikna við hvert viðbragð.

Hvernig mælirðu?

PageSpeed Insights (pagespeed.web.dev) sýnir INP fyrir vefinn þinn ef næg umferð er til staðar til að Google hafi raungögn. Í Search Console sést staðan fyrir allan vefinn undir Core Web Vitals.

Fleiri fréttir