Leitarvélabestun í WordPress

Kafli 2 af 4

SEO-greining og læsileiki

3 mín. lestur

Yoast greinir hverja færslu og síðu á meðan þú skrifar. Svona lestu úr litunum, velur lykilfrasa og bætir læsileikann.

Þegar Yoast SEO er virkt fylgir greining hverri færslu og síðu sem þú skrifar í kubbaritlinum. Hún skiptist í tvennt: SEO-greiningu, sem metur hvort textinn sé vel til þess fallinn að finnast í leit, og læsileikagreiningu, sem metur hversu auðvelt er að lesa hann.

Færslan „Svona hellum við upp á hinn fullkomna espresso“ opin í kubbaritlinum með Yoast SEO-hliðarstikuna opna. Þar eru meðal annars Readability analysis með grænu merki, Search appearance, Social media appearance, Schema, Advanced og Cornerstone content.
Yoast-hliðarstikan opnast með Yoast-tákninu efst til hægri. Grænt merki við Readability analysis þýðir að læsileikinn er í lagi.

Þú opnar greininguna með Yoast-tákninu efst til hægri í ritlinum. Litaðir punktar við táknið sýna stöðuna í fljótu bragði, og með því að smella á það opnast Yoast í hliðarstikunni. Þar eru greiningarnar efst og fyrir neðan hlutar sem við förum yfir í næstu köflum: Search appearance, Social media appearance, Schema, Advanced og Cornerstone content. Atriði merkt með lás, eins og tillögur að innri hlekkjum, eru aðeins í greiddu útgáfunni.

Lykilfrasi og leitarásetning

Greiningin byrjar á því að þú slærð inn lykilfrasa (focus keyphrase): orðið eða orðasambandið sem þú vilt helst að færslan finnist á. Fyrir færsluna á myndinni er lykilfrasinn „espresso“. Hugsaðu um hvað fólk slær raunverulega inn í leitina, og hvað það vill fá að vita. Færsla sem svarar spurningunni vel er líklegri til að standa sig en færsla sem nefnir frasann oft.

Í ókeypis útgáfunni velurðu einn lykilfrasa á hverja færslu. Notaðu ekki sama frasann á mörgum síðum, því þá keppa þær hver við aðra. Ef færsla er sérstaklega mikilvæg fyrir vefinn, eins og ítarlegur leiðarvísir eða aðalþjónusta, geturðu merkt hana sem hornsteinsefni (cornerstone content). Þá gerir Yoast strangari kröfur og hjálpar þér að tengja í hana úr öðru efni.

Rautt, appelsínugult og grænt

Hvert atriði í greiningunni fær lit: rautt þýðir að eitthvað þarf að laga, appelsínugult að það mætti bæta, og grænt að allt sé í lagi. Meðal þess sem SEO-greiningin skoðar er:

  • hvort lykilfrasinn kemur fyrir í titli, fyrstu efnisgrein, lýsingu og slóð,
  • lengd textans,
  • innri hlekki í annað efni á vefnum og ytri hlekki á aðra vefi,
  • hvort myndir eru í færslunni og hvort þær hafa alt-texta.

ÁbendingMarkmiðið er ekki að fá allt grænt. Ef textinn verður óeðlilegur við að troða frasanum inn, láttu hann frekar vera. Þú skrifar fyrir fólk.

Læsileiki

Læsileikagreiningin metur meðal annars lengd setninga og efnisgreina, hvort textanum er skipt upp með millifyrirsögnum og hversu oft þolmynd er notuð. Stuttar setningar, skýrar millifyrirsagnir og germynd („Við hellum upp á“ frekar en „Það er hellt upp á“) gera texta auðveldari aflestrar, bæði í síma og tölvu.

Hafðu í huga að Yoast styður ekki íslensku að fullu. Sum atriði, eins og mat á tengiorðum, eiga aðeins við um tungumál sem Yoast þekkir, svo taktu læsileikagreiningunni á íslenskum texta sem leiðbeiningu, ekki dómi. Yoast leitar heldur ekki að stafsetningar- eða málfræðivillum, svo það er alltaf gott að láta einhvern lesa yfir.

Í næsta kafla förum við yfir hvernig færslan birtist í leitarniðurstöðum og þegar henni er deilt á samfélagsmiðlum.