Kafli 1 af 4
Uppsetning Yoast SEO

Hvað leitarvélabestun snýst um í dag, hvernig þú setur upp Yoast SEO og hvar helstu stillingarnar eru.
Í þessu námskeiði lærirðu að nota Yoast SEO, vinsælustu leitarvélaviðbótina fyrir WordPress, til að hjálpa leitarvélum að skilja vefinn þinn og birta hann rétt. Kaflarnir eru fjórir: uppsetning, greining á texta, titlar og deilingar á samfélagsmiðlum, og loks veftré, brauðmolar og tæknileg atriði. Dæmin eru af sýnivefnum Kaffihúsið Bolli.
Hvað er leitarvélabestun í dag?
Fyrir nokkrum árum snerist leitarvélabestun að miklu leyti um að velja eitt leitarorð og endurtaka það nógu oft. Það virkar ekki lengur. Google skilur samhengi og samheiti, og spyr fyrst og fremst: svarar þessi síða því sem leitandinn vill vita? Þetta kallast leitarásetning (search intent). Sá sem leitar að „kaffihús í miðbænum“ vill líklega opnunartíma og staðsetningu, ekki sögu kaffibaunarinnar.
Leitarorð skipta samt máli, því þau segja þér hvaða orð fólk notar. Gott efni sem svarar spurningunni skýrt, er vel uppbyggt og á hröðum, öruggum vef er grunnurinn. Yoast SEO er verkfæri sem hjálpar þér að gæta að tæknilegu atriðunum og minnir þig á góðar venjur, en það skrifar ekki gott efni fyrir þig.
Uppsetning
- Í stjórnborði WordPress ferðu í Viðbætur og velur að bæta við nýrri viðbót.
- Leitaðu að „Yoast SEO“, settu viðbótina upp og virkjaðu hana.
- Nýtt atriði, Yoast SEO, birtist þá í valmyndinni vinstra megin, og Yoast-táknið efst í stikunni.
- Opnaðu Yoast SEO og veldu First-time configuration. Þar leiðir Yoast þig í gegnum grunnstillingarnar, eins og hvort vefurinn tilheyrir fyrirtæki eða einstaklingi.

Á stjórnborðinu (Dashboard) eru líka Task list, með verkefnum sem Yoast mælir með, og Alert center, þar sem tilkynningar um möguleg vandamál birtast. Talan við Yoast SEO í valmyndinni segir hversu margar tilkynningar bíða. Yoast býður þar líka að tengja Site Kit by Google, svo tölur úr Google Analytics og Search Console sjáist á sama stað.
Stillingarnar
Undir Yoast SEO → Settings eru allar helstu stillingarnar á einum stað, með leitarreit efst. Vinstra megin eru þær flokkaðar í General (almennt), Content types (færslur, síður og aðrar efnistegundir) og Categories & tags (flokkar og efnisorð). Neðar eru ítarlegri stillingar sem við skoðum í síðasta kaflanum.

Í Site features ákveðurðu hvaða eiginleika Yoast á að nota. Efst eru gervigreindartól (AI tools), sem eru nýleg viðbót og sum aðeins í greiddu útgáfunni. Neðar eru eiginleikar eins og SEO-greining, læsileikagreining og XML-veftré. Láttu sjálfgefnu stillingarnar halda sér nema þú hafir ástæðu til að breyta.
ÁbendingUndir Site connections geturðu staðfest eignarhald á vefnum hjá Google Search Console og fleiri leitarvélum með því að líma inn staðfestingarkóða.
Í næsta kafla skoðum við greininguna sem Yoast gerir á hverri færslu og síðu á meðan þú skrifar.