Kafli 3 af 4
Titlar, lýsingar og deilingar á samfélagsmiðlum

Leitartitill og lýsing ráða því hvort fólk smellir. Svona stillirðu sjálfgefin snið, fínstillir einstakar færslur og stjórnar því hvernig vefurinn birtist þegar honum er deilt.
Í leitarniðurstöðum Google sér fólk þrennt um síðuna þína: titil, slóð og stutta lýsingu. Þetta er búðarglugginn þinn í leitinni, og góður titill og lýsing geta skipt sköpum um hvort fólk smellir á þína síðu eða þá næstu.
Sjálfgefin snið fyrir hverja efnistegund
Í Yoast SEO → Settings, undir Content types, stillirðu hvernig færslur, síður og aðrar efnistegundir birtast sjálfgefið. Þar er rofi sem segir hvort efnistegundin á að birtast í leitarniðurstöðum yfirleitt, og reitir fyrir leitartitil (SEO title) og lýsingu (meta description).

Titillinn er settur saman úr breytum sem þú bætir við með „Insert variable“. Sjálfgefið verður titill færslu til dæmis „Svona hellum við upp á hinn fullkomna espresso – Kaffihúsið Bolli“. Skiltáknið (separator) velurðu sjálf(ur) í almennu stillingunum. Lýsingarreitinn má oft láta tóman hér, því lýsing á best við þegar hún er skrifuð sérstaklega fyrir hverja síðu.
ÁbendingSlökktu aðeins á „Show … in search results“ ef þú vilt örugglega ekki að efnistegundin finnist í leit. Þá hverfur hún líka úr veftrénu.
Titill og lýsing á hverri síðu
Þegar þú skrifar færslu eða síðu sérðu í Yoast-hliðarstikunni sýnishorn af því hvernig hún lítur út í Google, bæði í síma og tölvu. Þar geturðu yfirskrifað sjálfgefna titilinn og skrifað lýsingu.
- Hafðu titilinn stuttan og lýsandi, og helst með lykilfrasann framarlega. Yoast sýnir með litaðri stiku hvort lengdin er hæfileg.
- Skrifaðu lýsingu í einni til tveimur setningum sem segir hvað bíður lesandans og gefur ástæðu til að smella.
- Athugaðu slóðina (slug). Stutt og lýsandi slóð er betri en löng.
Google notar ekki alltaf lýsinguna þína og velur stundum annan texta af síðunni sem passar betur við leitina. Það er eðlilegt, en vel skrifuð lýsing er samt oftast það sem birtist.
Samfélagsmiðlar
Undir General → Site representation segirðu Yoast hvort vefurinn tilheyrir fyrirtæki (Organization) eða einstaklingi (Person). Fyrir fyrirtæki seturðu inn nafn og merki, og neðar á sömu síðu slóðir á samfélagsmiðlasíður fyrirtækisins. Þessar upplýsingar hjálpa Google að tengja vefinn við fyrirtækið.

Þegar færslu er deilt á Facebook, LinkedIn eða öðrum miðlum er sótt mynd, titill og lýsing. Í Yoast-hliðarstikunni á hverri færslu geturðu séð sýnishorn af deilingunni og valið sérstaka mynd, titil og lýsingu fyrir samfélagsmiðla. Þar má vera aðeins líflegri en í leitinni. Ef ekkert er valið notar Yoast forsíðumynd færslunnar.
Í síðasta kaflanum förum við yfir veftré, brauðmola og ítarlegri stillingar.