Allar fréttir

Leiðbeiningar

GEO fyrir WordPress: tæknilegi gátlistinn

Gervigreindin þarf að finna vefinn, geta lesið hann og skilja hvað á honum stendur. Hér er gátlisti fyrir WordPress-vefi: skráning, aðgangur þjarka, texti sem vélar lesa, skipulögð gögn, höfundar, uppbygging og hraði.

· 8 mín. lestur

Vafragluggi með gátlista þar sem atriðin eru hökuð við, slaufusvigar sem tákna skipulögð gögn og eldingu sem táknar hraða.

Til að gervigreind vitni í vefinn snýst mest um efnið sjálft: skýr svör, staðreyndir og góð uppbygging (sjá Hvað er GEO?). En efnið gerir ekkert gagn ef gervigreindin finnur það ekki eða getur ekki lesið það. Þessi gátlisti fer yfir tæknilegu hliðina, sérstaklega fyrir WordPress-vefi.

1. Gervigreindin þarf að finna vefinn

  • Undir Stillingar → Lestur er ekki hakað við „Letja leitarvélar í að fara yfir þennan vef“.
  • Veftré (sitemap) er til. WordPress býr það til sjálft á slóðinni /wp-sitemap.xml, og SEO-viðbætur eins og Yoast SEO búa til sitt eigið.
  • Vefurinn er skráður í Google Search Console og Bing Webmaster Tools, og veftréð sent inn þar. Copilot frá Microsoft byggir á leitarvísitölu Bing.

2. Þjarkarnir þurfa að mega lesa hann

  • Robots.txt lokar ekki á leitarþjarka gervigreindarinnar (OAI-SearchBot, Claude-SearchBot, PerplexityBot) nema það sé meðvituð ákvörðun.
  • Cloudflare og öryggisviðbætur loka ekki á þá heldur.
  • Nánar í greininni Lokar vefurinn þinn á ChatGPT?

3. Textinn þarf að sjást án JavaScript

Margir þjarkar keyra ekki JavaScript. Þeir lesa það sem kemur frá vefþjóninum og ekkert annað. Í WordPress er þetta yfirleitt í lagi, en nokkur atriði geta falið efni:

  • Texti sem er bara í myndum, til dæmis verðskrá eða opnunartímar sem mynd. Settu textann inn sem texta.
  • Efni sem er sótt eftir að síðan hleðst, til dæmis með sumum viðbótum fyrir umsagnir, verð eða vörulista.
  • Prófaðu: hægrismelltu á síðuna og veldu „View Page Source“. Ef mikilvægur texti sést ekki þar, sér þjarkurinn hann líklega ekki heldur.

4. Skipulögð gögn segja vélum hvað er hvað

Skipulögð gögn (schema) lýsa síðunni á vélrænan hátt: hver á vefinn, hvað greinin heitir, hver skrifaði hana og hvenær. Yoast SEO og sambærilegar viðbætur bæta grunngögnum við sjálfkrafa. Athugaðu að þessi séu rétt:

  • Organization eða LocalBusiness: nafn, merki, heimilisfang og tenglar á samfélagsmiðla.
  • Article: titill, höfundur, birtingardagur og hvenær greinin var síðast uppfærð.
  • FAQPage: spurningar og svör. Google sýnir ekki lengur sérstakar spurninganiðurstöður fyrir flesta vefi, en gögnin hjálpa vélum samt að skilja efnið.
  • BreadcrumbList: hvar síðan er í uppbyggingu vefsins. Sjá veftré og brauðmolar.

ÁbendingGoogle býður upp á ókeypis prófun á skipulögðum gögnum, Rich Results Test. Settu slóð inn og sjáðu hvaða gögn Google les af síðunni.

5. Sýndu hver stendur á bak við efnið

  • Greinar sýna höfund og dagsetningu, og hvenær þær voru síðast uppfærðar.
  • „Um okkur“ segir skýrt hver þið eruð, hvað þið gerið og hvar.
  • Sömu upplýsingar um fyrirtækið alls staðar: á vefnum, í Google-fyrirtækjaprófílnum og á Já.is.

6. Uppbygging sem auðvelt er að vitna í

  • Ein aðalfyrirsögn (H1) á hverri síðu og lýsandi millifyrirsagnir, gjarnan sem spurningar.
  • Svaraðu spurningunni í fyrstu efnisgreininni undir fyrirsögninni og útskýrðu svo nánar.
  • Notaðu lista og töflur fyrir samanburð og skref. Töflukubburinn í WordPress býr til alvöru töflur sem vélar lesa.
  • Fyrir algengar spurningar hentar Details-kubburinn í WordPress: spurning sem opnast í svar, og textinn er allur í síðunni.

7. Hraði

Hægur vefur er verri fyrir gesti og leitarvélar, og gervigreind sem leitar í rauntíma les margar síður á stuttum tíma. Skyndiminni, CDN og hæfilega stórar myndir skipta mestu. Sjá námskeiðið um hraða og PageSpeed Insights.

8. llms.txt, ef þú vilt

Skráin llms.txt er tillaga um efnisyfirlit vefsins fyrir málalíkön. Stóru gervigreindarfyrirtækin hafa ekki staðfest að þau noti hana, svo hún er neðst á listanum. Sumar SEO-viðbætur bjóða upp á að búa hana til. Það skaðar ekki, en hin sjö atriðin skipta meira máli.

Fleiri fréttir