Shopify og WooCommerce eru vinsælustu netverslunarkerfin á Íslandi. Hér berum við þau saman á mannamáli: kostnað, greiðslur, sveigjanleika, eignarhald og hvenær hvort hentar betur.

Ef þú ætlar að opna netverslun stendur valið oftast á milli tveggja kerfa: Shopify og WooCommerce. Bæði eru traust og notuð af milljónum verslana um allan heim, en þau byggja á ólíkri hugmynd. Shopify er leigð þjónusta þar sem allt fylgir í einum pakka. WooCommerce er ókeypis viðbót við WordPress sem þú setur upp á eigin hýsingu og ræður yfir sjálfur.
Bæði kerfin eru algeng hér á landi. Af þeim 4.017 íslensku vefjum þar sem Wisdom greindi netverslun keyra 2.575 á WooCommerce og 1.409 á Shopify.
- WooCommerce64%
- Shopify35%
- Annað1%
Af 4.017 íslenskum vefjum þar sem netverslun greindist. Heimild: Wisdom.
| WooCommerce | 2.575 |
|---|---|
| Shopify | 1.409 |
| Annað | 33 |
Munurinn í stuttu máli
- Shopify: þú greiðir mánaðargjald og Shopify sér um hýsingu, öryggi og uppfærslur. Einfalt að byrja, en þú leigir verslunina og ert bundinn við það sem Shopify leyfir.
- WooCommerce: kerfið sjálft er ókeypis, en þú þarft hýsingu og einhvern sem sér um uppfærslur. Þú átt verslunina og getur breytt öllu.
Hvað kostar hvort kerfi?
Á vef Shopify kostar ódýrasta leiðin, Basic, 39 dollara á mánuði, eða 29 dollara á mánuði sé greitt fyrir árið. Grow kostar 105 dollara (79 á ári) og Advanced 399 dollara (299 á ári). Verð getur verið annað eftir löndum, svo athugaðu verðið sem Shopify sýnir þér. Við bætast oft forrit (apps) úr forritaverslun Shopify, sem mörg kosta mánaðargjald.
WooCommerce er ókeypis, en þú greiðir fyrir hýsingu og oft fyrir einhverjar viðbætur, til dæmis tengingu við greiðslugátt eða bókhaldskerfi. Margar viðbætur eru ókeypis eða greiddar einu sinni á ári. Hýsing fyrir litla verslun kostar frá nokkrum þúsundum króna á mánuði, sjá Hvað kostar vefhýsing?
Greiðslur: munur sem margir missa af
Shopify er með eigin greiðsluþjónustu, Shopify Payments, en hún er ekki í boði á Íslandi. Hún er í boði í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, en ekki hér. Íslenskar verslanir þurfa því að nota aðra greiðslugátt, og þá leggur Shopify á aukagjald af hverri sölu: 2% á Basic, 1% á Grow og 0,6% á Advanced. Þetta kemur ofan á gjald færsluhirðisins.
WooCommerce tekur ekkert gjald af sölu. Þú greiðir aðeins færsluhirðinum, eins og í verslun. Íslenskir færsluhirðar bjóða tengingar við WooCommerce, sjá kaflann Greiðslur og prófanir í WooCommerce-námskeiðinu.
ÁbendingReiknaðu dæmið: verslun sem selur fyrir 2 milljónir króna á mánuði á Basic-leið Shopify greiðir 40.000 kr. í aukagjald til Shopify á mánuði, ofan á mánaðargjaldið og gjald færsluhirðisins.
Sveigjanleiki og efni
WooCommerce keyrir á WordPress, sem er gert fyrir efni. Ef verslunin er hluti af stærri vef með fréttum, leiðbeiningum, bókunum eða þjónustu er WooCommerce yfirleitt betri kostur. Þú getur líka breytt hverju sem er, því þú hefur aðgang að öllum kóðanum. Shopify er sérhæft fyrir sölu og þar er erfiðara að byggja upp mikið efni eða sérlausnir.
Rekstur og öryggi
Hér hefur Shopify forskot: þú þarft ekki að hugsa um uppfærslur, afrit eða öryggi vefþjónsins. Með WooCommerce berð þú ábyrgð á því, eða einhver fyrir þig. Ef þú velur WooCommerce skaltu ganga frá því strax hver sér um uppfærslur og afrit, og lesa leiðbeiningar okkar um öryggi í WooCommerce.
Eignarhald og að skipta seinna
Með WooCommerce átt þú vefinn og gögnin og getur flutt hann til annarrar hýsingar hvenær sem er. Með Shopify geturðu sótt vörur, viðskiptavini og pantanir, en útlitið og forritin fylgja ekki ef þú ferð. Það er hægt að skipta á milli kerfa, en það er vinna, svo það borgar sig að velja vel í upphafi.
Hvort hentar þér?
- Veldu Shopify ef: þú vilt byrja hratt, salan er aðalatriðið, þú vilt ekki hugsa um tæknina og gjöldin af sölu skipta minna máli.
- Veldu WooCommerce ef: verslunin er hluti af stærri vef, þú vilt eiga vefinn sjálfur, sleppa gjaldi af hverri sölu eða þarft sérlausnir og íslenskar tengingar.
- Í báðum tilfellum: athugaðu hvort færsluhirðirinn og bókhaldskerfið sem þú notar tengist kerfinu áður en þú velur.
Er Shopify Payments í boði á Íslandi?
Nei. Íslenskar verslanir þurfa að nota aðra greiðslugátt, og þá leggur Shopify á aukagjald af hverri sölu, 0,6–2% eftir leið.
Er WooCommerce ókeypis?
Já, viðbótin sjálf er ókeypis. Þú greiðir fyrir hýsingu og stundum fyrir viðbætur, til dæmis tengingar við greiðslugáttir eða bókhald.
Hvort er algengara á Íslandi?
WooCommerce. Af 4.017 íslenskum vefjum þar sem Wisdom greindi netverslun keyra 2.575 á WooCommerce og 1.409 á Shopify.
Get ég skipt frá Shopify yfir í WooCommerce seinna?
Já. Vörur, viðskiptavini og pantanir er hægt að flytja, en útlit og forrit þarf að setja upp á nýtt.
Viltu læra að setja upp verslun sjálfur? WooCommerce-námskeiðið okkar er ókeypis og á íslensku. Og þegar verslunin er komin í loftið: fleiri gestir í netverslunina.


