WordPress 7.1.5 lagar tuttugu öryggisatriði, þar á meðal galla sem óinnskráður aðili getur nýtt sér við ákveðnar aðstæður. Þetta er fimmta öryggisuppfærslan síðan WordPress 7.1 kom út í ágúst.

WordPress 7.1.5 kom út 18. nóvember 2026. Þetta er hrein öryggisuppfærsla með tuttugu lagfæringum, og WordPress mælir með að allir uppfæri strax. Öryggisfyrirtækið Patchstack flokkar átján þeirra sem veikleika og tvær sem almennar varnir. Hún kemur aðeins þremur vikum á eftir WordPress 7.1.4, og er fimmta öryggisuppfærslan síðan WordPress 7.1 kom út í ágúst.
Alvarlegasti gallinn
Alvarlegasti gallinn tengist kubbnum fyrir sniðmátshluta (Template Part). Óinnskráður aðili gat útbúið efni sem, þegar ritstjóri eða stjórnandi opnaði það, gat á endanum leitt til þess að kóði væri keyrður á vefnum. Patchstack bendir á að árásin krefjist þess að einhver með réttindi opni efnið, en metur gallann þann alvarlegasta í uppfærslunni.
Hvað annað var lagað?
- Athugasemdir: óinnskráður aðili gat falið skaðlegan kóða í athugasemd, sem keyrði á síðum með kubbnum „Nýjustu athugasemdir“. Þá gátu notendur með takmörkuð réttindi séð netföng þeirra sem skrifa athugasemdir.
- Kubbar: þátttakendur gátu falið skaðlegan kóða í dagsetningarkubbi athugasemda, í innfelldu efni og í skráarnöfnum mynda.
- Gagnagrunnur: tveir gallar sem gátu leyft árásaraðila að senda skipanir beint í gagnagrunninn, við sérstakar aðstæður.
- Upplýsingaleki: lokaðir efnisflokkar sáust í leit án innskráningar.
- XML-RPC: hægt var að nota eldri tengileið WordPress til að álagsprófa vefinn með mörgum beiðnum í einu.
- Vefir með fjölvefjauppsetningu (multisite): stjórnandi eins vefs gat gert sjálfan sig að yfirstjórnanda allra vefja.
Lagfæringarnar voru líka settar í eldri útgáfur, allt aftur til 4.7. Vefir á 4.6 eða eldra fá engar öryggisuppfærslur lengur.
Hvað þarftu að gera?
- Athugaðu í stjórnborðinu undir Uppfærslur að vefurinn sé á 7.1.5. Á flestum vefjum setjast smærri uppfærslur inn sjálfkrafa.
- Farðu yfir notendur með réttindi þátttakanda (Contributor) eða meira, og fjarlægðu þá sem þurfa ekki lengur aðgang. Sex lagfæringanna varða það sem þessi hlutverk geta gert. Sjá Notendur, lykilorð og réttindi.
- Ef vefurinn er með fjölvefjauppsetningu: farðu yfir hverjir eru stjórnendur á hverjum vef.
- Ef þú notar ekki XML-RPC, til dæmis fyrir eldri forrit, er í lagi að loka fyrir það.
ÁbendingWordPress 7.2 er enn væntanlegt 8. desember. Önnur lokaprufuútgáfan (RC 2) er komin út og inniheldur sömu lagfæringar. Sjá WordPress 7.2 kemur 8. desember.
Fimm öryggisuppfærslur á þremur mánuðum
Tíðnin sýnir hve mikilvægt er að uppfærslur séu settar inn reglulega, helst sjálfkrafa. Samkvæmt Wisdom keyra 40,6% íslenskra vefja sem Wisdom hefur mælt og svara á WordPress, svo uppfærslan snertir stóran hluta íslenskra vefja.


