Allar fréttir

Leiðbeiningar

Hvað er Domain Authority og skiptir það máli fyrir Google?

Domain Authority er einkunn frá 1 til 100 sem margir nota til að meta styrk vefja í leit. Google notar hana ekki, en það sem hún mælir, tenglar frá öðrum vefjum, skiptir samt máli. Svona virkar hún og svona styrkirðu vefinn.

· 6 mín. lestur

Mælir sem sýnir einkunn á kvarða, með tenglum sem liggja frá öðrum vefjum inn að einum vef í miðjunni.

Ef þú hefur talað við markaðsstofu eða lesið um leitarvélabestun hefurðu kannski heyrt talað um „Domain Authority“, oft skammstafað DA. Talan er sett fram eins og einkunn: vefurinn þinn er með 15, keppinauturinn með 32. En hvað segir hún í raun, og á að eltast við hana?

Hvað er Domain Authority?

Domain Authority er einkunn frá 1 til 100 sem bandaríska fyrirtækið Moz reiknar út. Hún á að spá fyrir um hversu líklegt er að vefur raðist ofarlega í leitarniðurstöðum, og byggir að mestu á því hversu margir aðrir vefir vísa á hann og hversu sterkir þeir eru. Því hærri tala, því sterkari er vefurinn talinn.

Önnur fyrirtæki reikna svipaðar tölur með eigin aðferðum: Ahrefs kallar sína Domain Rating (DR) og Semrush Authority Score. Tölurnar eru ekki sambærilegar á milli fyrirtækja, svo sami vefur getur fengið mjög ólíkar einkunnir eftir því hvar flett er upp.

Notar Google Domain Authority?

Nei. Domain Authority er ekki frá Google og Google notar hana ekki til að raða vefjum. Starfsmenn Google, meðal annars John Mueller og Gary Illyes, hafa ítrekað sagt þetta opinberlega. Google hefur sínar eigin aðferðir til að meta vefi og birtir enga sambærilega einkunn.

Það þýðir samt ekki að talan sé gagnslaus. Hún byggir á tenglum frá öðrum vefjum, og tenglar eru ein af leiðunum sem Google notar til að finna síður og meta hvort efni sé traust og gagnlegt. Hugsaðu um Domain Authority eins og hitamæli: hann sýnir eitthvað raunverulegt, en það hjálpar ekki að hita mælinn.

Til hvers er talan þá?

  • Til samanburðar: hvernig stendur vefurinn þinn miðað við keppinauta í sömu grein, mælt með sama tóli?
  • Til að fylgjast með þróun: hækkar talan með tímanum þegar fleiri vísa á vefinn?
  • Til að meta tengla: er vefur sem býðst til að vísa á þig traustur, eða lítill vefur sem enginn heimsækir?

ÁbendingÍslenskir vefir fá oft lægri tölur en erlendir, einfaldlega vegna þess að færri vefir eru til á íslensku og því færri sem geta vísað á þá. Berðu þig saman við íslenska keppinauta, ekki við alþjóðleg stórfyrirtæki.

Hvernig styrkirðu vefinn?

Markmiðið er ekki að hækka töluna, heldur að fá fleiri traustar vísanir á vefinn. Talan fylgir svo á eftir. Þetta virkar best:

  1. Búðu til efni sem aðrir vilja vísa á: ítarlegar leiðbeiningar, verðdæmi, gátlista eða eigin tölur og gögn. Gott efni fær tengla af sjálfu sér.
  2. Nýttu tengslin sem þú hefur: birgja, samstarfsaðila, fagfélög og samtök í greininni, viðskiptavini sem vilja segja frá samstarfinu og verkefni sem þú styrkir.
  3. Segðu frá fréttum: nýjar vörur, verkefni eða tölur geta ratað í fjölmiðla og fagrit, sem vísa oft á vefinn.
  4. Skráðu fyrirtækið þar sem það á heima, til dæmis á Já.is og í Google fyrirtækjaprófílnum, með réttri vefslóð.
  5. Tengdu síðurnar þínar saman með innri tenglum, svo styrkurinn dreifist um allan vefinn.

Það sem þú átt að forðast

Það er freistandi að kaupa sér flýtileið, en Google skilgreinir það sem tenglaruslpóst (link spam) og getur refsað vefnum fyrir það. Samkvæmt reglum Google telst meðal annars til þess:

  • að greiða fyrir tengla eða greinar sem innihalda tengla,
  • að skipta á vörum eða þjónustu fyrir tengla,
  • óhófleg tenglaskipti („ég vísa á þig ef þú vísar á mig“),
  • tenglar í lélegum skrám og safnsíðum sem enginn les,
  • þjónustur sem lofa hundruðum tengla eða hárri DA-tölu á skömmum tíma.

Keypt umfjöllun er í lagi ef tenglarnir eru merktir sem kostaðir (sponsored eða nofollow). Þá hafa þeir ekki áhrif á röðun hjá Google.

Tæknilega hliðin skiptir líka máli

Tenglar hjálpa lítið ef vefurinn sjálfur er hægur, óöruggur eða með brotnar síður. Wisdom, greiningarkerfið okkar, skoðar meðal annars hraða, öryggi og leitarvélastillingar vefsins og segir þér á mannamáli hvað mætti bæta. Og ef þú vilt líka sjást í svörum gervigreindar, lestu hvað er GEO.

Hvað er góð Domain Authority?

Það er engin ein rétt tala. Talan er hlutfallsleg, svo berðu vefinn saman við íslenska keppinauta í sömu grein og fylgstu með hvort hún hækki með tímanum.

Hefur Domain Authority áhrif á röðun í Google?

Ekki beint. Google notar ekki Domain Authority. En talan byggir á tenglum frá öðrum vefjum, og tenglar skipta Google máli.

Hver er munurinn á Domain Authority og Domain Rating?

Domain Authority er frá Moz og Domain Rating frá Ahrefs. Báðar eru á kvarðanum 0 til 100 og byggja á tenglum, en reiknaðar á ólíkan hátt og eru ekki sambærilegar.

Má kaupa tengla til að hækka töluna?

Google flokkar keypta tengla sem tenglaruslpóst nema þeir séu merktir sem kostaðir. Það getur skaðað vefinn. Betra er að búa til efni sem aðrir vilja vísa á.

Fleiri fréttir