Allar fréttir

Öryggi

Let's Encrypt hættir að senda áminningar um útrunnin skírteini

· 3 mín. lestur

Tölvupóstur yfirstrikaður og tákn fyrir sjálfvirka endurnýjun SSL-skírteina.

Let's Encrypt sendir ekki lengur tölvupóst þegar SSL-skírteini er að renna út. Ef endurnýjunin bregst færðu ekki lengur viðvörun.

Let's Encrypt, sem gefur út ókeypis SSL-skírteini fyrir stóran hluta vefja heimsins, hætti í júní 2025 að senda tölvupóst til að vara við því að skírteini væri að renna út.

Af hverju?

Langflest skírteini frá Let's Encrypt eru endurnýjuð sjálfkrafa, svo áminningarnar skiptu fáa máli. Að hætta þeim minnkar kostnað og þýðir að Let's Encrypt þarf ekki að geyma netföng notenda, sem er betra fyrir persónuvernd.

Hvað þýðir þetta fyrir þig?

Ef sjálfvirka endurnýjunin bregst, til dæmis vegna breytinga á DNS eða vefþjóni, færðu enga viðvörun lengur. Fyrsta merkið verður þá að gestir sjá aðvörun í vafranum um að vefurinn sé ekki öruggur.

  1. Athugaðu hvenær skírteinið rennur út með því að smella á lásinn við slóðina í vafranum.
  2. Spurðu hýsingaraðilann hvort endurnýjunin sé sjálfvirk og hvort hún sé vöktuð.
  3. Settu upp vöktun sem lætur þig vita ef skírteini nálgast lokadagsetningu.

Fleiri fréttir