Verðskrá

Hýsing sem vex með þér

Þrjár leiðir, skýrt verð, ekkert smátt letur. Frítt SSL, dagleg afrit, Cloudflare-vörn og vöktun eru innifalin í þeim öllum. Þú velur bara stærðina.

Leiðirnar

Veldu stærð, við sjáum um rest

Öll verð eru með VSK. 10% afsláttur gegn árlegri greiðslu og 30 daga skilafrestur á öllum leiðum.

  • Léttvigt

    Fyrir minni vefi, einstaklinga og félög sem vilja örugga hýsingu án fyrirhafnar.

    3.290 kr./mán.Mánaðarlega með VSK
    Velja Léttvigt
    • 3.000 heimsóknir á mánuði
    • 10 GB pláss
    • Frír vefflutningur
    • SSL, afrit, Cloudflare-vörn og vöktun
  • Vinsælast

    Millivigt

    Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki með reglulega umferð og vef sem má ekki detta út.

    6.690 kr./mán.Mánaðarlega með VSK
    Velja Millivigt
    • 10.000 heimsóknir á mánuði
    • 20 GB pláss
    • Frír vefflutningur
    • SSL, afrit, Cloudflare-vörn og vöktun
  • Þungavigt

    Sérsniðin uppsetning fyrir vefi og kerfi með mikla umferð, mikil gögn eða sérþarfir.

    TilboðVerð eftir umfangi
    Fá tilboð
    • Heimsóknir og pláss eftir þörfum
    • Vefir, forrit og gagnagrunnar
    • Sérsniðin uppsetning
    • SSL, afrit, Cloudflare-vörn og vöktun
EiginleikiLéttvigtMillivigtÞungavigt
Heimsóknir á mánuði3.00010.000Eftir þörfum
Pláss10 GB20 GBEftir þörfum
Frítt SSL-skírteini
Dagleg afrit, geymd í 14 daga
Cloudflare-vörn og efni afgreitt nálægt gestum
Nýjustu tengistaðlar og þjöppun
Uppitímavöktun
Frír vefflutningur
Forrit og gagnagrunnar
Sérsniðin uppsetning

Vefumsjón

Bættu umsjón við hvaða leið sem er

Hýsingin sér um vefþjóninn. Umsjónin sér um vefinn sjálfan: uppfærslur, prófanir eftir hverja uppfærslu, afrit fyrir hverja breytingu og fólk sem svarar þegar eitthvað kemur upp. Verð fer eftir umfangi vefsins.

  • Uppfærslur
  • Prófanir eftir uppfærslur
  • Afrit fyrir breytingar
  • Tæknileg aðstoð

Gott að vita

Algengar spurningar um verð

Hvernig virkar árleg greiðsla?
Þú greiðir fyrir tólf mánuði í einu og færð 10% afslátt af mánaðarverðinu. Þú getur alltaf byrjað mánaðarlega og skipt yfir síðar.
Get ég skipt um leið?
Já. Ef vefurinn vex færir þú þig upp um leið hvenær sem er og greiðir bara mismuninn út tímabilið.
Hvað er 30 daga skilafrestur?
Ef þér snýst hugur innan 30 daga frá stofnun endurgreiðum við hýsinguna að fullu. Engar spurningar, engin binding.
Er umsjón innifalin?
Hýsingarleiðirnar ná yfir rekstur vefþjónsins, afrit, öryggislag og vöktun. Umsjón með vefnum sjálfum, uppfærslur, prófanir og breytingar, er bætt við sem viðbót, sjá hér að ofan.

Engin áhætta

30 daga skilafrestur

Ef þér snýst hugur innan 30 daga endurgreiðum við hýsinguna að fullu. Engar spurningar, engin binding.

Settu vefinn þinn
í öruggar hendur

Segðu okkur frá vefnum þínum og við setjum saman tilboð, hvort sem þig vantar hýsingu, fulla umsjón eða flutning frá núverandi hýsingu.