Allar fréttir

Veföld

Ókeypis WordPress-námskeiðin eru komin aftur, nú sex talsins

Námskeiðin sem drógu fjölda gesta á gamla vefinn eru komin aftur, endurskrifuð fyrir nýjustu útgáfu WordPress. Við bættum við þremur nýjum, um öryggi, hraða og flutning, svo nú eru námskeiðin sex og kaflarnir 45.

· 3 mín. lestur

Sex námskeið Vefaldar: WordPress frá grunni, öryggi, leitarvélabestun, hraðari vefur, WooCommerce og flutningur milli hýsinga, 45 kaflar samtals.

Á gamla vef Vefaldar var ókeypis WordPress-námskeið á íslensku sem var lengi ein mest sótta síða vefsins. Margt hefur breyst í WordPress síðan það var skrifað, svo við settumst niður og endurskrifuðum það frá grunni.

Sex námskeið, 45 kaflar

Fyrst eru það gömlu námskeiðin þrjú, í nýrri útgáfu:

Við bættum svo við þremur nýjum námskeiðum um það sem við fáum oftast spurningar um í daglegum rekstri:

  • Öryggi WordPress-vefja: 6 kaflar um uppfærslur, notendur og lykilorð, tveggja þátta auðkenningu, vöktun og eldvegg, og hvað gera skal ef vefurinn er hakkaður.
  • Hraðari WordPress-vefur: 5 kaflar um hvernig hraðinn er mældur, myndir, skyndiminni og CDN, viðbætur og þema, og hvaða máli hýsingin skiptir.
  • Að flytja WordPress-vef milli hýsinga: 4 kaflar um undirbúning, flutning skráa og gagnagrunns, lén og DNS, og hvað þarf að athuga eftir flutninginn.

Hvað er nýtt?

Allir kaflar eru skrifaðir fyrir nýjustu útgáfu WordPress, með kubbaritlinum og Site Editor í stað gamla ritilsins. Skjámyndirnar eru allar nýjar og teknar af sýnivef, svo þú sérð nákvæmlega það sem birtist hjá þér. Kaflarnir eru stuttir og þú getur farið í gegnum námskeiðin í réttri röð eða hoppað beint í það sem þig vantar.

Gömlu slóðirnar vísa sjálfkrafa á nýju kaflana, svo bókamerki og hlekkir á gömlu greinarnar virka áfram.

Fleiri fréttir