Leiðbeiningar
Af hverju að velja WordPress fyrir vefinn?

WordPress keyrir um 40% allra vefja í heiminum. Hér eru helstu kostirnir, og það sem þú þarft að hafa í huga varðandi uppfærslur, öryggi og hýsingu.
Þegar nýr vefur er í undirbúningi er ein fyrsta spurningin hvaða vefumsjónarkerfi á að nota. Við fáum þessa spurningu oft, og svarið okkar er yfirleitt WordPress. Það hentar þó ekki öllum, svo hér eru bæði kostirnir og það sem þarf að hugsa um.
WordPress kom fyrst út árið 2003 og keyrir í dag um 40% allra vefja í heiminum, allt frá litlum bloggum til stórra fyrirtækjavefja og vefverslana.
Kostirnir
- Frjáls hugbúnaður. WordPress er opinn hugbúnaður (open source) og kostar ekkert. Þú átt vefinn og efnið, og getur flutt hann til annars hýsingaraðila hvenær sem er.
- Einfalt í daglegri notkun. Kubbaritillinn gerir þér kleift að skrifa færslur og breyta síðum án þess að kunna kóða, og flestir eru fljótir að ná tökum á honum.
- Sveigjanlegt. Með þemum og viðbótum getur vefurinn vaxið úr einföldum kynningarvef í bókunarkerfi eða vefverslun með WooCommerce.
- Gott fyrir leitarvélar. WordPress skilar hreinum, lýsandi slóðum og viðbætur eins og Yoast SEO hjálpa þér að fínstilla titla, lýsingar og veftré.
- Stórt samfélag. Það er auðvelt að finna svör á netinu og fólk sem kann á kerfið, líka hér á landi. Þú ert ekki bundin(n) einum þjónustuaðila.
WordPress.com eða WordPress.org?
Það eru til tvær útgáfur af WordPress með nánast sama nafni, og það er auðvelt að ruglast á þeim:
- WordPress.org: ókeypis hugbúnaðurinn sem þú setur upp á eigin hýsingu og léni. Þú ræður öllu, getur sett upp hvaða viðbót sem er og átt vefinn sjálf/ur.
- WordPress.com: áskriftarþjónusta þar sem fyrirtæki hýsir vefinn fyrir þig. Þægilegt að byrja, en það sem þú mátt gera fer eftir því hvaða áskrift þú greiðir fyrir.
Þegar talað er um WordPress-vef fyrirtækis er nær alltaf átt við WordPress.org, uppsett á hýsingu eins og hjá Veföld. Það er sú útgáfa sem þessi grein og námskeiðin okkar fjalla um.
Það sem þarf að hugsa um
Frelsinu fylgir ábyrgð. WordPress sjálft er ókeypis, en vefurinn kostar samt eitthvað í rekstri og þarf umhirðu.
- Uppfærslur. WordPress, þemu og viðbætur fá reglulegar uppfærslur, margar þeirra öryggisuppfærslur. Vefur sem er ekki uppfærður verður smám saman berskjaldaður.
- Öryggi. Langflestir veikleikar finnast í viðbótum, ekki kjarnanum. Því færri og betur viðhaldnar viðbætur, því betra. Tveggja þátta auðkenning og reglulegt afrit skipta líka miklu.
- Hýsing. Hraði og stöðugleiki ráðast að miklu leyti af hýsingunni. Ódýr samnýtt hýsing sem er ekki stillt fyrir WordPress getur gert góðan vef hægan.
- Viðbótafíkn. Það er freistandi að leysa allt með nýrri viðbót, en hver viðbót þyngir vefinn og bætir við kóða sem þarf að viðhalda.
ÁbendingGerðu ráð fyrir viðhaldi frá byrjun, annaðhvort með því að taka frá tíma sjálf(ur) eða fá einhvern til að sjá um það.
Hentar WordPress þér?
Ef þú vilt geta séð um efnið sjálf(ur), átt vefinn og haft svigrúm til að bæta við virkni seinna, er WordPress traustur kostur. Ef þú vilt aðeins einfalda nafnspjaldssíðu og aldrei hugsa um hana getur lokuð, hýst þjónusta stundum verið einfaldari. Það sem skiptir mestu er að vefurinn sé uppfærður, öruggur og á góðri hýsingu, og það á við hvaða kerfi sem er.


