Hjá Veföld getur þú sett upp WordPress vefsíðu á nokkrum mínútum. Þú stofnar aðgang og kerfið okkar sér um að sækja og setja upp nýjustu útgáfu af WordPress.
Stofnun aðgangs
Til að stofna aðgang opnar þú vefsíðu okkar https://vefold.is. Á miðju forsíðunnar slærðu inn tölvupóstfang og lykilorð sem þú vilt nota. Því næst smellir þú á gulu örina til að stofna aðgang.
Stuttu seinna færðu sendan tölvupóst þar sem þú smellir á slóð til að virkja aðganginn. Þetta er gert til að staðfesta að þú sért eigandi tölvupóstfangsins. Þegar tölvupóstfang hefur verið staðfest má setja upp WordPress vef.
Uppsetning á WordPress vef
Eftir að þú hefur stofnað og virkjað aðgang ertu líklega með stjórnborðið opið. Ef ekki getur þú skráð þig inn á slóðinni https://stjorn.vefold.is. Einnig er innskráningar takki efst í hægra horninu á vefsíðu okkar https://vefold.is sem vísar í innskráningu.
Til að setja upp nýjan vef smellir þú á „Nýr vefur“. Þá opnast síða þar sem þú getur valið notandanafn og lykilorð fyrir vefinn. Því næst velur þú áskriftarleið og fyllir út greiðsluupplýsingar.
Að því loknu fyllir þú út greiðsluupplýsingar smellir á Áfram og kerfið okkar setur upp WordPress vefsíðu fyrir þig. Uppsetningin getur tekið smástund en þegar hún er búin færðu upp greiðslukvittun og slóð vefs á skjáinn. Slóð vefs er úthlutað sjálfkrafa en henni getur þú breytt seinna í stjórnborðinu undir stillingum vefs.
Þegar vefur hefur verið settur upp kemur hann fram í lista á forsíðu stjórnborðsins. Þar má finna stillingar vefs og tengil beint í innskráningu WordPress kerfisins. Sé smellt á slóð vefs opnast vefurinn í nýjum flipa eða glugga.
Til hamingju, nú hefur þú sett upp WordPress vef hjá Veföld. Ef þú að byrja nota WordPress og vilt læra betur á kerfið þá mælum við með námskeiðinu okkar á netinu. Námskeiðið er frítt, opið fyrir alla og fer yfir öll helstu atriði til að koma þér af stað.
Smelltu hér til að hefja frítt WordPress námskeið hjá Veföld.